fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Eliza sýnir forsetann í nýju ljósi: Guðni grimmur á Grímunni í gærkvöldi – Kann ekki að gera GIF

Fókus
Miðvikudaginn 6. júní 2018 10:20

Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid. Mynd-forseti.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eliza Reid forsetafrú birtir á Facebook heldur óvenjulega mynd af sér og Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, þar sem þau voru stödd á afhendingu Grímu verðlaunanna í gær.

Guðni hefur hingað til slegið í gegn fyrir alþýðlega framkomu og jákvæðni, en myndin sem Eliza birtir sýnir hann í nýju ljósi.

Á myndinni er Guðni heldur grimmilegur á svipinn og hefur bróðir hans, Jóhannes Ólafur, orð á því í athugasemd.

Líklegast hefur þetta verið leikaraskapur og sprell hjá forsetahjónunum, enda viðeigandi á uppskeruhátíð íslenskrar leiklistar að bregða upp grímu.

Eliza svarar mági sínum og segir:

„Þetta á að vera GIF með nokkrar myndir. En ég kann klárlega ekki að gera það.“

Flestum þykir myndin stórskemmtileg og lýsa því yfir í athugasemdum.

Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona segir til að mynda:

„Þið eruð alveg kostuleg á svipinn á þessari mynd. Svo skemmtileg.“

Ævar Þór Benediktsson, Ævar vísindamaður, tekur undir með Sirrý: „

Æðisleg mynd – gaman að hitta á ykkur áðan.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun