fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Eyjan
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 15:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um 70% þjóðarinnar er hlynnt frumvarpi dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Maskínu sem birt var í DV. Einungis 15% eru andvíg henni. Þá vill meirihluti landsmanna herða reglur um útlendinga og fólk vill ekki að stjórnmálamenn séu að skipta sér af einstökum málum. Er þá ekki kominn tími til að Alþingi afgreiði þessi mál?

Allir flokkar á Alþingi eru hlynntir brottfararstöð. Það á líka við um hin útlendingafrumvörp ríkisstjórnarinnar.

Ég vona því innilega að allir flokkar beri gæfu til að standa saman í þessum málum og afgreiða þau. Ekki tefja, heldur afgreiða. Það myndi skapa sátt í samfélaginu og gagnast öllum flokkum.

Ríkisstjórnin þarf ekki að nudda stjórnarandstöðunni upp úr dræmum afköstum á síðustu árum. Það er fortíðin. Nú þegar dómsmálaráðherra hefur skapað sátt í samfélaginu um útlendingamálin ber þingmönnum að líta til framtíðar. (Það á líka við um þingmenn Samfylkingarinnar, sem virðast á köflum ekki vera vissir um hvort flokkurinn þeirra hafi breyst eða ekki. Gleyma því einstaka sinnum að í stefnuyfirlýsingu er rætt um að samræma reglur um útlendinga við nágrannaríkin.)

Það er óskandi að alvöru samstaða myndist á þingi um útlendingamálin. Ekki eins konar sýndarsamstaða þar sem stjórnarandstaðan styður en tefur hvert málið á fætur öðru.

Samstaða í útlendingamálum mun skila sér í auknu trausti almennings til Alþingis. Við þurfum flýtimeðferð, enda allir á þingi sammála um þessi mál.

Höfundur er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir