fbpx
Laugardagur 14.febrúar 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Bílaumferðin

Eyjan
Laugardaginn 17. janúar 2026 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hitti Njál Þorgeirsson bónda á Bergþórshvoli á dögunum við umferðarljós á Miklubraut. Hann beið eftir gönguljósum og horfði á umferðina þjóta hjá. „Þetta eru ótrúlega margir bílar,“ sagði hann. „Eiga allir í landinu bíl?“ „Já,“ svaraði ég. „Margir eiga meira að segja tvo eða þrjá bíla. Ísland er nefnilega bílaland. Hér eru litlar almannasamgöngur svo að fólk þarf að eiga bíl til að komast ferða sinna.“ Hann horfði á umferðina ráðleysisaugum og spurði svo hvort stjórnvöld reyndu ekki að fækka bílum. „Bæði já og nei,“ sagði ég, „þau bæði reyna að fækka bílum og fjölga þeim. Fyrir jólin auglýstu þau mikla verðhækkun á bílum um áramótin. Þetta varð til þess að bílasala jókst um nokkur hundruð prósent. Allir sem vettlingi gátu valdið keyptu sér nýjan bíl. Gamli bílinn hvarf þó ekki af götunum heldur gekk í endurnýjun lífdaga hjá nýjum eiganda. Með þessu snilldarbragði tókst að fjölga um nokkur þúsund bíla. Umferðin jókst sem þessu nam með tilheyrandi umferðartöfum og veseni,“ sagði ég.

„Ég skil þetta ekki,“ sagði Njáll. „Þetta er einfalt,“ sagði ég. „Stjórnvöld græða stórfé á bílainnflutningi og öllu sem honum tengist. Með því að fjölga bílum skapast ófremdarástand á götunum og enginn kemst leiðar sinnar. Göturnar verða fullar af bílum sem sitja fastir í umferðarhnút. Þá reiknar stjórnin með því að fólk temji sér bíllausan lífsstíl.“ „Þarf sem sé fyrst að fjölga bílunum til að þeim fækki?“ sagði Njáll. „Nákvæmlega,“ sagði ég, „þú ert að ná þessu.“ Hann hristi höfuðið og lagði af stað yfir götuna á grænu ljósi. Njáll virtist svo agnarsmár í samanburði við allar glæsikerrurnar. sem biðu eftir ljósum eins og skriðdrekasveit. Njáll bóndi rétt komst út á miðja Miklabraut áður en ljósin breyttu um lit og straumurinn æddi af stað. Hann hvarf mér sýnum eins og hann hefði gufað upp í bílamergðinni. Lauk þar með Brennunjálssögu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Snúum af braut afhelgunar

Björn Jón skrifar: Snúum af braut afhelgunar
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Jón Gnarr skrifar: Strákar eru líka fólk

Jón Gnarr skrifar: Strákar eru líka fólk
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Þegar kerfið bregst þolendum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Þegar kerfið bregst þolendum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Af óttanum skulið þið þekkja þá

Sigmundur Ernir skrifar: Af óttanum skulið þið þekkja þá
EyjanFastir pennar
10.01.2026

Sigmundur Ernir skrifar: Hafa skal það sem ljótara reynist

Sigmundur Ernir skrifar: Hafa skal það sem ljótara reynist
EyjanFastir pennar
10.01.2026

Óttar Guðmundsson skrifar: Ævisögur

Óttar Guðmundsson skrifar: Ævisögur