Það þarf að taka til og skera fitu, hjá ríkinu eins og sveitarfélögum. Við erum að eyða umfram tekjur og það gengur ekki til lengdar. Þá er jákvætt hjá Akureyri og Hafnarfirði sem hafa kynnt að gatnagerðargjöldum megi dreifa á fjóra gjalddaga. Covid var um margt áhugaverður tími og bara ágætur tími fyrir byggingargeirann og byggingavöruverslanir. Fólk fór að dunda að heimilinu í stað þess að ferðast til útlanda. Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Markaðarins.
Hér má hlusta á brot úr þættinum:
„Það er náttúrlega vextirnir í dag í augnablikinu eru auðvitað ráðandi þáttur í stöðunni og þar er leið að fara fyrir stjórnvöld. Eins og við sjáum þá hvað Reykjavíkurborg er að gera í dag. Það þarf bara að fara í tiltekt. Og skera fituna af og þau störf sem eru ekki arðbær, þau þurfa að hliðrast út, fara út. Og það þarf að létta á á útgjaldahliðinni því við erum bara einfaldlega að eyða umfram tekjur og það gengur ekki upp og það er ekki sjálfbært.“
Nei, ekki til lengdar allavega.
„Svo Finnst mér líka að það væri mjög klókt núna svona til skamms tíma, sem sagt auðveld aðgerð að hækka endurgreiðsluhlutfall af virðisaukaskatti vegna vinnu í byggingariðnaði, sem á að fara, skilst mér, að lækka núna í nýrri fjármálaáætlun. Það virkar alveg öfugt á markaðinn. Svo finnst mér líka frábært hvernig, ég held að Akureyrarbær hafi riðið á vaðið með það og Hafnarfjarðarbær kynnti það núna í vikunni, að dreifa gatnagerðargjöldum á fjóra greiðsludaga, ef ég las þetta rétt, á 12 eða 24 mánaða tímabili eða 48. Það er jákvætt. Það liðkar fyrir.
Þú getur ímyndað þér. Við vorum að tala um byggingarkostnað, það tekur svona 14 til 18 mánuði að byggja byggingu. En þú ert kannski búinn að vera að bíða í annan eins tíma. Bara með hamarinn í hendinni og bíða eftir leyfi og að lóðin sé tilbúin. Þannig að allt þetta safnast saman og skiptir máli.“
Já, nú hefur mikið gengið á undanfarinn áratug, skulum við segja. Það kom Covid. Náttúrlega fór allt á haus hér í samfélaginu, í hagkerfinu og aðfangakeðjur brustu. Segðu mér aðeins, hvernig var Covid í þínum geira?
„Já, ég hef nú verið, ég ætla nú ekki að segja gagnrýndur fyrir það en mér fannst þetta bara mjög áhugaverður tími. Og að mörgu leyti skemmtilegur. Fyrir þær sakir að ég er í eðli mínu bara mjög forvitinn um hegðun fólks, mannlega hegðun og hvernig við bregðumst við áskorunum og hvernig við tökumst á við áföll. Mér finnst það bara mjög áhugavert og mér finnst gaman að vera í þannig stöðu. Við, eins og öll þjóðin og allur heimurinn, í upphafi var auðvitað áhyggjufullur, við vorum áhyggjufull. Við vissum ekkert hvað byði okkar, við fengum okkar fréttir um að þetta væri allt saman að bara hrynja í kringum okkur og við bjuggum okkur undir það. En svo bara einhvern veginn gerðist hið óvænta sem, þegar maður horfir til baka er ekkert óvænt vegna þess að þegar er búið að taka allt af okkur, við getum ekki farið í leikhús, við getum ekki farið á tónleika, við getum ekki farið til útlanda, alla þessa félagslegu þætti. Við erum félagsverur og þá var auðvitað ekkert annað að gera en að fara bara og klára verkefnalistann á heimilinu og hreiðra betur um sig heima fyrir, í garðinum eða innandyra eða hvað sem er. Þannig að það var mikið um að vera hjá okkur á Covid-tímanum.“
Já, þannig að það var bara ágætur tími hjá ykkur?
„Já, það var bara góður tími hjá okkur og við fórum bara vel í gegnum tímann. Auðvitað var þetta á köflum auðvitað mjög íþyngjandi með girðingar og hólfaskiptingar og svo misstum við út stóran hóp af starfsfólki og svo koll af kolli. En heilt yfir þá bara sá maður úr hverju fólkið í Byko er gert og það fannst mér svo gaman og svona hvetjandi að sjá, alveg ótrúlegt keppnisskap, drifkraftur, vilji til að gera vel, vilji til að skapa, vilji til að... Og þar sá maður líka, sem mér fannst svo áhugavert, að vefverslun allt í einu tók kipp þarna. Og mörg fyrirtæki voru ekkert undir það búin en það var bara farið í það að leysa það og það var bara farið í að leysa úr hlutunum og allir lögðust á árarnar. Og það var leyst úr hlutum sem að öllu jöfnu tæki einhverja mánuði. En það var bara leyst á vikum. Þannig að mér fannst það áhugavert og gefur þá það tilefni að við getum gert ótrúlegustu hluti.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.