Eyjan

Heimssýn klofnar

Mynd

Djúpstæður klofningur er kominn upp innan Heimssýnar og ljóst að hópur einangrunarsinna sættir sig ekki við nálgun og vinnubrögð stjórnarinnar og nú hefur stofnun nýrra nei-samtaka verið boðuð.

Urgur hefur verið í mörgum einangrunarsinnum vegna framgöngu Haraldar Ólafssonar, formanns Heimssýnar, sem í fjölmiðlaviðtali ekki alls fyrir löngu sagði mögulegt að ofbeldi brytist út af völdum nei-sinna í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst næstkomandi ef já kemur upp úr kjörkössunum, Sigurðar Kára Kristjánssonar, fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sjálfskipaðs talsmanns Heimssýnar, og Ernu Bjarnadóttur. Þá hefur lítil hrifning verið með yfirlýsingar Vigdísar Hauksdóttur og Frosta Sigurjónssonar, fyrrverandi þingmanna Framsóknar, sem eru skráð talsmenn Heimssýnar á vef samtakanna og hafa hvað eftir annað hafa verið staðin að því að fara með kolrangt mál og blekkingar í málflutningi sínum um þjóðaratkvæðagreiðsluna og aðild að ESB.

Urgurinn er ekki beinlínis vegna blekkinga og og ósanninda sem frá þessum talsmönnum Heimssýnar koma heldur hins, að þessi málflutningur virðist fara öfugt í almenning og frekar fæla fólki frá nei-inu en draga að því.

Nú er svo komið að margir nei-sinnar óttast að meðbyrinn sé með já-inu og grípa því til örþrifaráða til að reyna að snúa umræðunni sér í hag. „Áfram Ísland“ er nafnið sem á að gefa hinum nýju samtökum, sem stofna á formlega næsta mánudag, og í fréttatilkynningu er sérstaklega tekið fram að mikilvægt sé að „barátta sem þessi sé háð á jákvæðum, uppbyggilegum og málefnalegum nótum,“ sem augljóslega er pilla til Heimssýnar, forystu þeirra samtaka og helstu talsmanna. Ýmsum þykir það þó ódýrt í besta falli að gera „Áfram Ísland“, heróp íþróttaáhugamanna sem styðja íslensk landslið í öllum íþróttagreinum, að slagorði fyrir því að svipta þjóðina sjálfsákvörðunarrétti um sína eigin framtíð.

Meðal ræðumanna á stofnfundinum verða Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, og Björn Zoega, læknir, starfandi í Arabíu, Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Einnig mun Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, vera meðal forsvarsmanna nýju nei-samtakanna. Þar með eru komin í eina sæng í baráttunni gegn því að þjóðin fái að ákveða sjálf framhald aðildarviðræðna við ESB forstjórar á ofurlaunum og málsvari lægst launaða fólksins í landinu. Ólafur Ragnar hefur lengi verið þekktur andstæðingur ESB, hallur undir Rússland og Kína.

Hvað sem öðru líður er ljóst að nei-hreyfingin er að tvístrast, Heimssýn er klofin og ónothæf og örvæntingin hefur gripið um sig í röðum nei-sinna. Óneitanlega verður forvitnilegt að sjá hvernig Sólveigu Önnu og Halldóri Benjamín tekst að samstilla málflutning sinn.

Fréttin hefur verið uppfærð. Erna Bjarnadóttir var sögð starfsmaður Mjólkursamsölunnar en blaðamaður hefur verið upplýstur um að hún hafi látið af störfum þar í janúar síðastliðnum. Á LinkedIn og á vef FKA er Erna þó enn skráð sem starfsmaður Mjólkursamsölunnar.

Fréttin hefur verið uppfærð:

Í upphaflegum texta stóð að Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, hefði í fjölmiðlaviðtali boðað mögulegt ofbeldi ef já yrði niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Haraldur gerði athugasemdir við þetta orðalag og taldi vegið að mannorði sínu með því orðalagi. Því hefur nú verið breytt.