fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
Eyjan

Hafnarfjörður: Meirihlutinn kolfallinn – Viðreisn með pálmann í höndunum

Eyjan
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miklar sviptingar eru á fylgi flokka í Hafnarfirði og flest bendir til þess að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar sé kolfallinn. Vísir birti í gær nýja könnun Maskínu um fylgi flokka í bænum og niðurstöðurnar staðfesta þá þróun sem birtist í nýlegri könnun sem Maskína gerði fyrir DV. Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu fylgi og meirihlutinn er fallinn.

Samfylkingin tapar einnig fylgi en er stærsti flokkurinn í bænum. Viðreisn tekur mikið stökk og er næststærsti flokkurinn en Sjálfstæðisflokkurinn hrapar niður í þriðja sæti. Miðflokkurinn tekur mikið stökk og ríflega þrefaldar fylgi sitt. Framsókn eykur fylgi sitt lítillega og Vinstrið kemur sprækt inn þótt ekki líti út fyrir að það dugi fyrir manni í bæjarstjórn.

Athyglisvert er að skoða hver skipting bæjarfulltrúa yrði, miðað við þessa niðurstöðu. Samfylkingin sem fær 24,2% fengi þrjá bæjarfulltrúa og sömuleiðis Viðreisn, sem fær 22,4% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn, sem í dag hefur fjóra bæjarfulltrúa, fengi 22,1% sem ekki dygði fyrir nema tveimur bæjarfulltrúum. Mjög er þó mjótt á mununum og ekki þyrfti mikið að gerast til að þriðji maður Sjálfstæðisflokksins kæmist inn. Það yrði þá á kostnað Framsóknar, en 11. og síðasti maður inn er annar maður af lista Framsóknar. Tíundi maður inn er þriðji maður á lista Viðreisnar.

Skjáskot af Vísi.

Samkvæmt könnuninni missir núverandi meirihluti tvo menn, fær fjóra í stað sex síðast. Meirihlutinn er því fallinn. Einu gildir þótt þær sviptingar yrðu að Framsókn héldi sínum tveimur og Sjálfstæðisflokkurinn næði sínum þriðja manni inn á kostnað þriðja Viðreisnarmannsins. Meirihlutinn er engu að síður fallinn.

Út frá könnuninni er einungis einn möguleiki á myndun tveggja flokka meirihluta. Samfylkingin og Viðreisn hafa saman sex bæjarfulltrúa, sem er meirihluti. Verði úrslit kosninganna í samræmi við niðurstöður könnunarinnar er ljóst að Viðreisn er í lykilaðstöðu og getur valið sér samstarfsaðila.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund Logadóttir: Forgangsmál að tryggja forgang almennings í orkumálum

Halla Hrund Logadóttir: Forgangsmál að tryggja forgang almennings í orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aðalsmerki verður svikamerki

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aðalsmerki verður svikamerki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Skaðar ekki EES-samninginn að kjósa um framhald viðræðna – EES er norskt batterí

Eyjólfur Ármannsson: Skaðar ekki EES-samninginn að kjósa um framhald viðræðna – EES er norskt batterí
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Myndi vilja sjá það sama hjá okkur og á Möltu

Eyjólfur Ármannsson: Myndi vilja sjá það sama hjá okkur og á Möltu