fbpx
Mánudagur 19.maí 2025
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Leiksoppar örlaganna

Eyjan
Laugardaginn 26. apríl 2025 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef lengi talið mig í hópi vanmetinna snillinga. Bækur mínar hafa ekki notið verðskuldaðrar athygli og ég hef iðulega orðið fyrir aðkasti á netinu. Af þessum sökum var mér boðið á aðalfund í Píslarvættisfélaginu á dögunum í hliðarsal Hallgrímskirkju. Í félaginu er hæfileikafólk sem telur á sér brotið gróflega í daglegu lífi með mistúlkunum og alls konar misrétti. Sjá mátti í salnum mikið af þjóðþekktu fólki. Þarna voru synir Jóns Arasonar biskups, Ari og Björn sem báðir voru hálshöggnir með föður sínum í Skálholti 1550. Þeir voru reiðir og sögðust hafa misst höfuð sín fyrir hreinan misskilning. „Við ætluðum aldrei að fara alla leið með pabba,“ sagði Björn og dæsti mæðulega. Hallgerður langbrók sagðist hafa sætt ofsóknum fyrir að bregðast Gunnari á ögurstund. „Hann var réttur og sléttur ofbeldismaður og feik,“ sagði hún, „og átti ekkert gott skilið.“ Grettir Ásmundsson sagði alla sína harmsögu einkennast af misskilningi og rangtúlkunum. Hann talaði um réttarmorð enda hefði hann verið dæmdur saklaus í langa útlegð.

Gunnar Gunnarsson skáld sagðist hafa næstum því fengið Nóbelinn en tapað kapphlaupinu á síðustu metrunum vegna andróðurs sænskra vinstri manna. Hriflu-Jónas kvartaði undan meðferð Framsóknarflokksins á sér. „Mér var bolað úr pólitísku lífi þjóðarinnar að ósekju.“ Ástþór Magnússon sagði frá öllum sínum forsetakosningum þar sem óvinveitt öfl voru honum mótdræg. Gunnar Smári sósíalistaforingi sagði frá uppreisnartilraunum ungra ófriðarseggja í flokknum. „Ég er gerður að blóraböggli eins og Stalín forðum,“ sagði hann fullur sjálfsöryggis. „En þeir munu fá það óþvegið!“ Hallgrímur Helgason rithöfundur hélt langa ræðu um viðskipti sín við Guðberg Bergsson og formann Eflingar. „Ég ætla að feta í fótspor Jóhannesar Birkilands og skrifa Harmsögu Hallgríms og hafa fullan sigur!“ sagði hann undir dynjandi lófaklappi. Formaður félagsins var kosinn fyrrum ráðherrann Ásthildur Lóa sem var neydd til að segja af sér ráðherradómi vegna rangtúlkana. Varaformaður varð fyrrum þingmaðurinn Þór Saari sem hefur ekkert gengið að hasla sér völl að lokinni þingmennsku.

Ég gekk út í nóttina og saknaði Sigurðar Breiðfjörð rímnaskálds á fundinum. Hann var eins og ég vanmetið sjení með smááfengisvandamál. En hann hefur greinilega ekki nennt að taka þátt í þessu væli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Lögregla rúin trausti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Traust er undirstaða réttláts samfélags

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Traust er undirstaða réttláts samfélags
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Hér vantar óperu

Björn Jón skrifar: Hér vantar óperu
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra málsháttamálið

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra málsháttamálið
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Thomas Möller skrifar: Borgum meira!

Thomas Möller skrifar: Borgum meira!
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón Skrifar: Um gagnsemi prófa

Björn Jón Skrifar: Um gagnsemi prófa
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Mesta lýðræðisógn okkar tíma

Sigmundur Ernir skrifar: Mesta lýðræðisógn okkar tíma
EyjanFastir pennar
19.04.2025

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn
EyjanFastir pennar
12.04.2025

Sigmundur Ernir skrifar: Útgerðin fer þangað sem henni sýnist

Sigmundur Ernir skrifar: Útgerðin fer þangað sem henni sýnist
EyjanFastir pennar
12.04.2025

Óttar Guðmundsson skrifar: Kaldalóns

Óttar Guðmundsson skrifar: Kaldalóns