fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást

Eyjan
Laugardaginn 26. júlí 2025 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á dögunum lést úti í Ameríku leik- og söngkonan Connie Francis. Þessi frétt vakti litla athygli enda var Connie orðið gömul kona og flestum gleymd. Mér var þetta áfall enda var Connie fyrsta ástin í mínu lífi. Unglingaherbergið á æskuheimili mínu við Bergstaðastræti var þakið myndum af Connie úr þýska tímaritinu Bravó. Hún vakti mig til nýs dags og var það síðasta sem ég leit augum áður en ég sofnaði.

Tíminn leið og ég flutti að heiman og reyndi að finna hamingjuna annars staðar en í foreldrahúsum. En ég líktist Gretti Ásmundarsyni sem gerði fjölmargar tilraunir til að flytja að heiman en leitaði alltaf aftur í móðurfaðminn. Hann var alltaf jafnvelkominn heim að Bjargi til Ásdísar mömmu sinnar sama hvað hann gerði af sér. Hún fyrirgaf honum allt og sá einungis hið góða í syni sínum. Grettir fékk að sannreyna að meðvirk móðir er gulli betri. Hún greiddi alltaf götu hans og varði hann fyrir sveitarslúðrinu.

Ég átti eftir að koma nokkrum sinnum heim í unglingaherbergið til mömmu eftir misheppnaðar sambúðir, trúlofanir og hjónabönd. Alltaf var jafn gott að komast í skjól til mömmu sem skildi allt og fyrirgaf allt og hitta aftur myndirnar af henni Connie minni Francis uppi á vegg. Þægileg öryggiskennd umlukti mann í gulmálaða hornherberginu þar sem tíminn stóð í stað. Connie Francis brosti til mín ofan af veggjunum ung og sæt sem fyrr. Þegar ég frétti af andláti hennar á dögunum fylltist hugurinn þakklæti. Connie var nefnilega eins og mamma. Hún stóð alltaf með mér þótt á móti blési og heimurinn virtist fullur af ósanngirni. Ef ég mætti ráða vildi ég reisa minnismerki um Ásdísi á Bjargi og minnast þannig allra þeirra góðu kvenna sem aldrei gáfust upp á óþekkum sonum sínum sem oftar en ekki voru fórnarlömb misskilnings og óréttlætis eins og við Grettir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Taktvísir hundar

Nína Richter skrifar: Taktvísir hundar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Samstarf Bandaríkjanna og ESB-ríkja í öryggis- og varnarmálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Heilbrigðiskerfið reiðir sig á erlent vinnuafl

Sigmundur Ernir skrifar: Heilbrigðiskerfið reiðir sig á erlent vinnuafl
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt

Óttar Guðmundsson skrifar: Kosninganótt
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?

Björn Jón skrifar: Hvað er að vera Íslendingur?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Hægri kratar og X-D kunningjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn

Óttar Guðmundsson skrifar: Narsissisminn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Loforðaverðbólga