
Sigurður Þórðarson, sem starfaði sem settur ríkisendurskoðandi í málefnum Lindarhvols ehf. hefur vísað Lindarhvolsmálinu svokallaða til embættis ríkissaksóknara. Þessi tíðindi bárust landsmönnum í gær á sama tíma og greinargerð Sigurðar, sem ríkisstjórnin og þá einkum forseti Alþingis hafa harðlega barist gegn því að verði birt, var lekið á netið af Píratanum Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.
Heimildarmaður Viljans segir ljóst að djúpríkið titri nú af áhyggjum.
„Þetta mál allt er fullkomið dæmi um það sem kalla mætti íslenska djúpríkið,“ hefur Viljinn eftir heimildarmanni sem er sagður þekkja vel til stjórnkerfisins og pólitíkur.
„Það er allt gert til að þæfa málið, enda mökuðu margir krókinn á þessu félagi og vilja ekki að upp um það komist. Í ljósi Íslandsbankaskýrslunnar, er ljóst að djúpríkið titrar nú af áhyggjum.“
Hugtakið djúpríki hefur notið töluverðra vinsælda í umræðunni undanfarin ár þó svo að sumir deili um hvort það eigi sér stoð í veruleikanum. Það byggir á þeirri hugmynd að á bak við lukt tjöldin fari embættismannakerfið með völd, í gegnum leynilegt tengslanet, og án þess að þessir embættismenn hafi verið kjörnir af almenningi til að fara með þessi völd. Þetta djúpríki starfi sjálfstætt frá ríkisstjórninni sem eins konar skuggastjórnvöld en sé þó svo valdamikið að jafnvel kjörnir fulltrúar fá lítið við það ráðið.
Viljinn segir að heimildarmenn miðilsins hafi bent á að Sigurður hafi skilað skýrslu sinni fyrir fimm árum síðan og hafi hún vægast sagt verið svört. Þá hafi skyndilega nýr ríkisendurskoðandi, Skúli Eggert Þórðarson, tekið yfir rannsóknina og gefið út sína eigin skýrslu þar sem lítið fór fyrir gagnrýni á starfsemi Lindarhvols, en margir líti á skýrslu Skúla sem hvítþvott. Hefur miðillinn það eftir heimildarmönnum að Sigurður hafi óvænt verið tekinn úr verkefninu á sínum tíma fyrir að spyrja óþægilegra spurninga og fyrir að vera með „almenn leiðindi“ við áhrifamenn sem voru ekki vanir slíkri framkomu í sinn garð.
Viljinn hafi, líkt og fleiri miðlar, ítrekað kallað eftir upplýsingum um málefni Lindarhvols en líkt og aðrir mætt engu nema lokuðum dyrum og af lestri greinargerðar Sigurðar að dæma gat ekki einu sinni settur ríkisendurskoðandi haggað þessum vel læstu dyrum, þrátt fyrir töluvert púl.