Martin Feldstein er ein aðalpersónan í hinni mögnuðu heimildarmynd The Inside Job sem hlaut Óskarsverðlaunin í fyrra.
Hlutverk Feldsteins í myndinni er mjög sérstætt, hann er eins og víti til varnaðar um spillt fjámálakerfi sem teygir anga sína inn í stjórnkerfið og háskólana.
Feldstein er prófessor í Harvard, en á sama tíma sat hann í stjórn hins gerspillta AIG tryggingarisa (sem reyndar breyttist í risastóran vogunarsjóð sem var nánast búinn að tortíma hagkerfi heimsins) og var ráðgjafi stjórnvalda.
Feldstein birtist í myndinni eins og einkennilega samviskulaus maður sem fann ekki neitt athugavert við að háskólamenn væru til sölu.
Ríkisbankinn Landsbanki hélt mikla ráðstefnu nú í byrjun mánaðarins – og hver skyldi vera aðalgesturinn?
Enginn annar en Martin Feldstein.