Andrés Magnússon blaðamaður birtir þessa gömlu mynd af Reykjavík á Facebook. Ég er ekki viss um hvenær hún er tekin, en mér finnst líklegast að horft sé út um glugga á Herkastalanum eða Uppsölum – sjónarhornið er semsagt frá suðurenda Aðalstrætis.
Þetta er áður en hús voru rifin til að rýma fyrir Landsímahúsinu og síðar Miðbæjarmarkaðnum. Þarna sést yfir Fógetagarðinn svokallaðan, þar sýnist manni vera kálrækt í gangi, það sést í bakhliðina á Gamla kvennaskólanum sem nú hýsir skemmtistaðinn Nasa. Á þessum tíma er ekki búið að reisa viðbygginguna þar sem salur skemmtistaðarins er.
Þar í bakgrunni er hús Ísafoldar, sem stóð við Austurstræti, en var síðar flutt yfir í Aðalstræti þar sem það hýsir veitingastaðinn Fiskmarkaðinn.
Þarna er Veltusund og við vesturhlið þess líklega byggingar sem tilheyrðu Hótel Íslandi. Það brann 1944. Á rústum þess var löngum hið svonefnda Hallærisplan, það sást móta fyrir grunni hússins, en svo var því ásamt gamla Steindórsplaninu breytt í Ingólfstorg – eitthvert ljótasta torg sem ég hef komið á.
Það er alls ekki víst að þær framkvæmdir sem hafa verið á svæðinu áratugina frá því myndin er tekin séu til sérstakrar prýði.