Ég hef komið inn í róbotafjós – ég get ekki sagt að það séu heillandi staðir.
Bóndinn í Botni getur haldið sínum skepnum inni árið í kring.
En þá vil ég fá mjólkina merkta þannig að öruggt sé að ekki dropi frá honum komi inn á mitt heimili.
Það er mitt val og ég er tilbúinn til að borga fyrir það – þótt ég sé ekki húsmóðir í Vesturbænum – rétt eins og hann telur það vera sitt val að setja ekki kýrnar út í náttúruna.