fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Eyjan

Út og suður

Egill Helgason
Sunnudaginn 4. mars 2012 09:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort talið um Nýja norðrið helgist ekki af því hvernig menn lesa á landakort. Landakort einkennnast af línum, lengdarbaugum og breiddarbaugum. En þessar línur er eu ekki til í rauninni, þær eru einfaldlega mælieiningar sem eru settar á kortin.

Við erum á ákveðnu svæði norðlægrar breiddar – það eru lönd eins og Rússland og Kanada líka. Þótt þessi lönd muni njóta einhverra auðæfa sem kunna að leynast í norðrinu er fátt sem bendir til þess að þetta hafi sérstök áhrif á okkur.

Það sem við þurfum helst að kaupa frá útlöndum er að finna sunnar í veröldinni. Það er einkum matvæli, vélar og tækjabúnaður og eldneyti. Á móti flytjum við út fisk sem er eftirsóttur sunnar í löndum.

Þótt til dæmis yrði farið að dæla upp olíu við Grænland færi það varla að hafa mikil áhrif á okkur – við munum áfram kaupa olíu á verði sem er ákveðið allt annars staðar í heiminum.

Samskipti þjóða fara nefnilega ekki eftir lengdar- eða breiddarbaugum – þau eru zikk zakk, út og suður.

Breytingarnar fyrir Ísland munu líklega aðallega felast í siglingaleiðum sem opnast og gætu þýtt aukna umferð í hafinu í kringum okkur. Þar eru bæði tækifæri og hættur. Ef slíkar siglingar ná sér verulega á strik munum við ábyggilega ekki hafa bolmagn til að hafa nauðsynlegt eftirlit með þeim – en um leið er hugsanlegt að einhverjar tekjur falli til vegna skipa sem nýta hafnaraðstöðu á Íslandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus

Orðið á götunni: Nýr formaður SA í vasa sægreifa – blekkingar Jens Garðars – Lilja Dögg veit ekki að hagvöxturinn í fyrra var í mínus
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan