Andstæðingar Lilju Mósesdóttur segja að hún myndi geta gert ágreining þótt hún væri ein í herbergi.
Þetta hefur verið sagt í háðungarskyni við hana.
Nú er Sigurður Þór Ragnarsson – Siggi stormur – búinn að kveðja flokk hennar, Samstöðu, eftir aðeins örfáar vikur. Hann kom víða fram fyrir hinn nýstofnaða flokk í fjölmiðlum.
Í tilkynningu frá Samstöðu segir að flokkurinn muni ekki tjá sig frekar um málið.
Þetta vekur samt upp spurningar um samstarfshæfileikana – og samstöðuna.