Sífellt vekur furðu hversu dómar fyrir gróft ofbeldi eru vægir á Íslandi.
Þrír menn eru dæmdir fyrir að misþyrma grískum ferðamanni í Bankastræti. Árásin var algjörlega tilefnislaus. Þetta byrjaði með því að þeir vildu neyða hann til að drekka áfengi úr flösku, en hann vildi ekki þiggja.
Það er sagt að þeir hafi ítrekað sparkað í höfuð hans þar sem hann lá í götunni.
Tveir mannanna voru dæmdir í tveggja ára fangelsi, einn í sextán mánaða fangelsi, en maður sem var í för með þeim var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir aðkomu að öðru ofbeldisverki sem sömu menn stóðu fyrir.
Þeir verða líklega lausir eftir ár.
En Grikkinn, hann er dáinn. Móðir hans bar vitni símleiðis fyrir dómnum og lýsti sálrænum áhrifum árásarinnar á hann. Maður getur reynt að ímynda sér hversu hræðilegt er að verða fyrir ofbeldi af þessu tagi.
Lengi stóð reyndar styrr um hvort móðirin fengi yfirleitt að bera vitni í málinu – og þurfti það að fara bæði fyrir Héraðsdóm og Hæstarétt.