fbpx
Laugardagur 25.október 2025
Pressan

Yfirmaður bólusetninga í Bandaríkjunum hættir störfum

Pressan
Þriðjudaginn 1. apríl 2025 16:32

Heilbrigðisráðherrann er andvígur bólusetningum. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peter Marks, sem var yfirmaður bólusetninga í Bandaríkjunum frá því 2012, sagði starfi sínu lausu á föstudaginn. Í uppsagnarbréfinu segir hann að ástæðan fyrir uppsögninni séu „rangfærslur og lygar“ Robert Kennedy jr, heilbrigðisráðherra.

Kennedy er þekktur andstæðingur bólusetninga og hefur kynt undir samsæriskenningum um skaðsemi bóluefna. Hann er nú að herða tök sín á heilbrigðisráðuneytinu og stofnunum þess.

New York Time og Wall Street Journal segja að Marks hafi í raun verið ýtt úr starfi. Hann tók við starfi sínu hjá FDA 2012 og kom meðal annars að bólusetningaáætluninni í tengslum við heimsfaraldur kórónuveirunnar.

Í uppsagnarbréfinu segir hann að Kennedy og skoðanabræður hans, hafi „gert árásir, af áður óþekktri stærð, á staðreyndir vísindanna“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk skilaboð frá manninum sem braut á henni í háskóla fyrir rúmum áratug – „Svo, ég nauðgaði þér“

Fékk skilaboð frá manninum sem braut á henni í háskóla fyrir rúmum áratug – „Svo, ég nauðgaði þér“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Morðinginn vill ekki greiða fjölskyldum fórnarlamba sinna meira – Segir þær hafa fengið nóg úr GoFundMe-söfnun

Morðinginn vill ekki greiða fjölskyldum fórnarlamba sinna meira – Segir þær hafa fengið nóg úr GoFundMe-söfnun
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrum samskiptastjóri Trump segir þetta þrennt hafa lagt bandarísk stjórnmál í rúst

Fyrrum samskiptastjóri Trump segir þetta þrennt hafa lagt bandarísk stjórnmál í rúst
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þrír handteknir á Tenerife eftir þriggja mánaða rannsókn á skipulögðum þjófnaði

Þrír handteknir á Tenerife eftir þriggja mánaða rannsókn á skipulögðum þjófnaði