fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Tveir ísbirnir urðu manni að bana

Pressan
Þriðjudaginn 13. ágúst 2024 09:02

Ísbirnir á Svalbarða þrífast ágætlega þrátt fyrir minni hafís.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir ísbirnir urðu starfsmanni ratsjár- og fjarskiptastöðvar á eyjunni Brevoort að bana á dögunum. Eyjan sem um ræðir er á kanadíska heimskautasvæðinu við Baffinsflóa, hafsvæði á milli Vestur-Grænlands og Baffinslands sem tilheyrir Kanada.

Maðurinn sem varð fyrir árásinni var starfsmaður fyrirtækis sem heitir Nasittuq og sinnir það meðal annars eftirliti fyrir bandaríska herinn.

Samstarfsmenn mannsins reyndu að koma honum til bjargar og var annar ísbjörninn skotinn til dauða. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um atvikið, til dæmis aðdraganda árásarinnar eða hvaða starfi umræddur starfsmaður sinnti.

Sjaldgæft er að ísbirnir verði mönnum að bana, en í umfjöllun AFP er þó rifjað upp að ísbjörn hafi orðið tveimur að bana, móður og ungum syni hennar, í Alaska í janúar síðastliðnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sex ungar stúlkur voru myrtar – Lögreglan taldi raðmorðingja vera að verki

Sex ungar stúlkur voru myrtar – Lögreglan taldi raðmorðingja vera að verki
Pressan
Í gær

Nýtt vopn skelfir Rússa – Beinir flugskeytum Pútíns af leið

Nýtt vopn skelfir Rússa – Beinir flugskeytum Pútíns af leið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?

Lík í tveimur hlutum og ekkert blóð – Hver myrti Elizabeth?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist

Fann 11 ára son sinn hengdan – Sagði það vera sjálfsvíg – Ekki var allt sem sýndist
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar

Svefntilraun unglinganna hafði alvarlegar afleiðingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar

Fyrrum slökkviliðsmaður ók í átta klukkustundir til að myrða fjölskyldu fyrrum unnustu sinnar