fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Pressan

9 ára stúlka lést eftir astmakast – Foreldrarnir létu renna í bað í stað þess að hringja á neyðarlínuna

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 23. apríl 2024 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin níu ára gamla Amy Lynn Modrow lést 17. febrúar eftir vikudvöl á gjörgæsludeild í Minneapolis. Miðvikudaginn 17. apríl voru foreldrar hennar, Anthony og Rachel Modrow, ákærð fyrir annars stigs manndráp og sökuð um að hafa valdið dauða Amy af gáleysi.

Amy var með astma og þann 9. febrúar gisti hún hjá vinkonu sinni þegar hún byrjaði að fá astmakast í svefni. Vinkona hennar vaknaði og tók eftir að Amy leið illa og lét móður sína vita.  Amy var með astmapúst með sér en móðir vinkonunnar varð sífellt áhyggjufyllri þegar pústið var ekkert að hjálpa Amy. Hringdi hún í Anthony, sem stundi af óþolinmæði og rétti konu sinni símann, sem sagði móður vinkonunnar að senda Amy heim. Móðir vinkonunnar bauðst til að fara með Amy til læknis en foreldrar hennar höfnuðu því boði.

Klukkan 7.09 sendi Amy móður sinni sms og bað um astmapúst og þegar hún kom heim klukkan 7:30 átti hún erfitt með andardrátt, gat varla gengið og bað um að fá að fara til læknis. Móðir hennar gerði ekkert fyrr en klukkan tíu þegar hún loksins hringdi í fjölskylduvinkonu og bað hana að koma og skoða Amy. Vinkonan kom og þá var húðin á Amy orðin blá, hún gat ekki lyft handleggjunum og var hágrátandi. Móðir hennar lét renna í bað fyrir hana. Vinkonan krafðist þess að Amy færi á sjúkrahús og greip hana að lokum í fangið, bar hana út á bílastæði íbúðarhússins og hringdi í neyðarlínuna klukkan 10.40. Sjúkraliðar mættu ekki fyrr en klukkan 10.57 og sinntu þeir Amy á bílastæðinu áður en þeir fluttu hana á sjúkrahús.

Þar dvaldi Amy í viku og meðan hún barðist fyrir lífi sínu birtu foreldrar hennar færslur um ástand hennar á samfélagsmiðlum og báðu um framlög og söfnuðu yfir 10 þúsund dölum. 

„Barnið mitt berst fyrir lífi sínu eftir alvarlegt astmakast. Hjálpaðu okkur,“ skrifaði Rachel á X.

Eftir að Amy lést birti Rachel færslu á X og taggaði atvinnuglímukappann Rebecca Quinn.

„Níu ára dóttir mín lést nýlega, hún var einn af stærstu aðdáendum þínum. Þú hafðir svo mikil áhrif á hana. Þú varst hetjan hennar. Þakka þér fyrir að gefa henni einhvern til að líta upp til. Hún vildi alltaf fara á Wrestlemania,“ skrifaði hún. Færslunni fylgdi mynd af Amy á sjúkrahúsinu, tengd við vélar með slöngu niður í hálsinn á henni.

Anthony birti röð af Facebook-færslum eftir andlátAmy þar sem hann lýsti sorg sinni.

„Það er opinbert að Amy hefur ekki fengið neina deyfingu  og hefur ekki vaknað. Hún er heiladauð. Þeir gefa henni til sunnudags fyrir líffæragjöf. Ég þarf að fara heim, þetta er svo sárt. Ég er búinn að kveðja hana,“ skrifaði hann daginn sem hún lést.

Saksóknarar hafa það eftir barnalæknum sem þeir ráðfærðu sig við að Amy hefði átt mun betri möguleika á að lifa af ef foreldrar hennar hefðu farið strax með hana á sjúkrahús. Þeir sögðu einnig að gufubað væri ekki viðurkennd meðferð við astmakasti. Haft er eftir Anthony að Amy hafi sagt honum mánuði fyrir andlát hennar að astmapústið hennar væri tómt, en hann fyllti aldrei á það. Hjónin mættu fyrir dómstól á fimmtudag þar sem trygging var ákveðin 25 þúsund dalir, nái hjónin að greiða hana munu þau vera í stofufangelsi þar til dómur fellur.

Faðir Amy, Anthony Modrow
Móðir Amy, Rachel Modrow
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Stakk vinkonu sína 500 sinnum

Stakk vinkonu sína 500 sinnum
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Klikkaðasta hugmyndin sem nokkur hefur nokkru sinni fengið“ – Gæti bjargað okkur í þriðju heimsstyrjöldinni

„Klikkaðasta hugmyndin sem nokkur hefur nokkru sinni fengið“ – Gæti bjargað okkur í þriðju heimsstyrjöldinni
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fimmtán ára drengur lenti í skelfilegu slysi – Fékk öflugt raflost í liminn

Fimmtán ára drengur lenti í skelfilegu slysi – Fékk öflugt raflost í liminn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Málið sem skekur Belgíu: Ungir drengir sagðir hafa hópnauðgað 14 ára stúlku

Málið sem skekur Belgíu: Ungir drengir sagðir hafa hópnauðgað 14 ára stúlku
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því

Fyrir einni milljón ára blönduðust tvær plöntur óvart og við njótum góðs af því
Pressan
Fyrir 5 dögum

Skyndileg blinda á öðru auganu kom upp um leyndan sjúkdóm

Skyndileg blinda á öðru auganu kom upp um leyndan sjúkdóm
Pressan
Fyrir 6 dögum

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm

Maðurinn sem getur ekki hætt að stela eggjum villtra fugla fékk dóm
Pressan
Fyrir 6 dögum

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt

Líkami þinn lyktar þegar hann er stressaður og hundar finna þessa lykt