fbpx
Föstudagur 18.júlí 2025
Fréttir

Slæmt útlit hjá Wagnerhópnum í Afríku – Rússar munu þó ekki sleppa takinu á álfunni

Ritstjórn DV
Föstudaginn 14. júlí 2023 08:00

Liðsmenn Wagner/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wagnerhópurinn, málaliðafyrirtæki Yevgeni Prigozhin, hefur lengi verið mikilvægur hlekkur í veru og ítökum Rússa í Afríku. En nú er framtíð Wagnerhópsins í álfunni ekki björt að mati hernaðarsérfræðings.

Árum saman hafa mörg þúsund Wagnerliðar verið til staðar í Afríku og verið fulltrúar Rússa þar í landi. Þeir hafa aðstoðað leiðtoga í Líbíu, Súdan, MósambikMiðafríku lýðveldinu, Malí og Búrkína Fasó við að halda völdum. Þeir hafa verið orðlagðir fyrir að hafa beitt miklu ofbeldi, stundað nauðganir og að hafa staðið fyrir áróðursherferðum.

Rússar vilja gjarnan halda stöðu sinni í Afríku en eftir að Prigozhin gerði skammlífa uppreisn gegn Vladímír Pútín í júní er Wagnerhópurinn líklega ekki vænlegasti valkosturinn til að annast rússneska hagsmuni í Afríku.

Þetta er mat Flemming Splidsboel, sérfræðings hjá dönsku hugveitunni DIIS. Í samtali við Danska ríkisútvarpið sagði hann að Rússar verði áfram til staðar í Afríku, ef þeir hafa getuna til þess, en óvíst sé að það verði Wagnerliðar sem verði fulltrúar þeirra þar.

Eins og kunnugt er þá lét Prigozhin af uppreisnartilburðum sínum og féllst á að fara til Hvíta-Rússlands. Í kjölfarið hafa rússnesk yfirvöld gert harða hríð að fyrirtækjum hans og reyna að láta líta út fyrir að hann sé ansi óvandaður pappír.

Niklas Møller Rendbo, sem starfar hjá danska varnarmálaskólanum og sérhæfir sig í málefnum Wagnerhópsins, sagði að útlitið sé ekki bjart hjá Wagnerhópnum í Afríku. Líklega verði reynt að skipta um lykilmenn hjá Wagner og reynt verði að finna önnur málaliðafyrirtæki sem geta tekið við verkefnunum í Afríku. Fyrirtæki sem eru ekki með misheppnaðar uppreisnartilraunir á bakinu.

Hann sagðist ekki telja það möguleika fyrir Rússa að hætta allri starfsemi sinni í Afríku því ráðamenn í Kreml njóti góðs af. Til dæmis séu það peningarnir sem Afríkuríki greiði fyrir þjónustu Wagnerliða og annarra Rússa og einnig hafi borist fréttir af því að Wagner hafi tekið við ábatasömum námurekstri í mörgum Afríkuríkjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Fuglaáhugafólk hneykslað á Sveppa – „Greinilegt að fuglarnir þjást á meðan þeir kumpánar flissa og skemmta sér“

Fuglaáhugafólk hneykslað á Sveppa – „Greinilegt að fuglarnir þjást á meðan þeir kumpánar flissa og skemmta sér“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Íslenskur raftónlistarmaður losnar ekki undan þýskum plötusamningi – „Passið ykkur áður en þið skrifið undir“

Íslenskur raftónlistarmaður losnar ekki undan þýskum plötusamningi – „Passið ykkur áður en þið skrifið undir“
Fréttir
Í gær

Erlendir ferðamenn og rútubílstjórar stoppa við Reykjavíkurveginn – Lögreglan biðlar til fólks að hætta þessu

Erlendir ferðamenn og rútubílstjórar stoppa við Reykjavíkurveginn – Lögreglan biðlar til fólks að hætta þessu
Fréttir
Í gær

Sigurjón gagnrýnir Heiðrúnu Lind harðlega – „Setur á sig geislabaug og er nánast heilagri en páfinn“

Sigurjón gagnrýnir Heiðrúnu Lind harðlega – „Setur á sig geislabaug og er nánast heilagri en páfinn“