fbpx
Sunnudagur 08.febrúar 2026
Fréttir

Vegfarandi stórslasaðist eftir að ekið var á hann og hund hans á Langholtsvegi – Ökumaðurinn sýknaður

Ritstjórn DV
Föstudaginn 12. desember 2025 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður hefur verið sýknaður af ásökunum um líkamsmeiðingar af gáleysi eftir bílslys sem átti sér stað þann 26. nóvember 2024 á Langholtsvegi, en maðurinn ók bifreið sinni á gangandi vegfaranda og hund hans. Vegfarandinn hlaut alvarlega fjöláverka í slysinu, þar með talið heilablæðingu og alvarlegan dreifðan heilaáverka, ótilfært brot í hálshrygg, brot í 2. rifu, lungnamar og beinbrot í vinstri fótlegg. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í gær.

Það var síðdegis þann 26. nóvember 2024 sem lögreglu barst tilkynning um slysið. Á vettvangi var brotaþoli í umsjá nærstaddra ásamt hundi sínum en ákærði sat í aftursæti bifreiðar sinnar í miklu áfalli. Brotaþoli var fluttur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild og hundurinn fór á dýraspítala.

Ákærði sagðist hafa ekið af Skeiðarvogi inn á Langholtsveg í norður. Birtuskilyrði hafi verið slæm og brotaþoli hafi birst skyndilega á akbrautinni fyrir framan bifreiðina. Ákærði náði ekki að hemla en reyndi að sveigja frá, en brotaþoli hljóp í veg fyrir bifreiðina í stað þess að stöðva eða hörfa frá. Ákærði þurfti að leita á bráðamóttöku eftir slysið til að fá andlegan stuðning.

Vitni lýstu því að allt hefði gerst mjög hratt. Einu þótti bifreiðinni hafa verið ekið of hratt. Eiginkona brotaþola sagði mann sinn vanan að fara í göngutúr með hundinn á þessum tíma dags. Hundurinn hafi verið með gott ljós á sér og færu þeir ávallt varlega í umferðinni.

Brotaþoli þurfti að gangast undir langa aðgerð eftir slysið til að festa aftur höfuðleður sem hafði losnað. Degi síðar var hann í öndunarvél með skerta meðvitund og lýsti því sjálfur að hann hafi næst munað eftir sér um 12 dögum eftir slysið. Sagðist hann enn í dag finna fyrir áverkum sínum og er ekki kominn með fulla starfsgetu. Þurfti hann meðal annars að notast við hjólastól um tíma á meðan fótur hans var að jafna sig, svo göngugrind, hækjur og spelku. Hné hans sé enn ekki orðið gott og mögulega þurfi hann að fá gervilið. Hundurinn lifði af en er enn með skerm til að koma í veg fyrir að hann sleiki sér af völdum slyssins og missti hann auk þess nokkrar tennur.

Dómari rakti í málinu að óumdeilt sé að hundurinn hafi verið með ljós en lýsing vitna bendi til þess að brotaþoli hafi mögulega skyggt á ljósið þegar slysið átti sér stað. Bíltæknirannsókn hafi ekki leitt í ljós ökuhraða bifreiðarinnar við ákeyrsluna og ákærði þverneitaði að hafa ekið of hratt. Ekki væri hægt að horfa til framburðar ákærðu hjá lögreglu í kjölfar slyssins enda augljóst að ákærði var í miklu áfalli. Þrátt fyrir að rannsóknarlögreglumaður hafi í vitnisburði sínum sagt að ummerki á vettvangi hafi bent til þess að bifreiðinni hafi verið ekið yfir hámarkshraða þá hafi engin rannsókn farið fram sem styður þá fullyrðingu. Af ljósmyndum af vettvangi megi sjá bifreið lagt í stæði framan við þrenginguna þar sem slysið átti sér stað og ekki hægt að útiloka að þessi bifreið hafi byrgt ákærða sýn þannig að hann sá hvorki brotaþola né hundinn fyrr en of seint var að afstýra slysi.

Þar með væri ekki hægt að slá því á föstu að ákærði hafi ekið of hratt miðað við aðstæður. Hann var því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins í málinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg

Þrautaganga konu í heilbrigðiskerfinu – Send heim eftir skoðun en ári síðar var staðan orðin skelfileg
Fréttir
Í gær

Háttsettur rússneskur hershöfðingi særður eftir skotárás í Moskvu

Háttsettur rússneskur hershöfðingi særður eftir skotárás í Moskvu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Friðgeir sakfelldur fyrir hatursorðræðu – Líkti Samtökunum 78 við barnaníðinga á veiðum

Friðgeir sakfelldur fyrir hatursorðræðu – Líkti Samtökunum 78 við barnaníðinga á veiðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur ómyrkur í máli og skorar á stjórn Bifrastar að axla ábyrgð – „Mál að linni“

Eiríkur ómyrkur í máli og skorar á stjórn Bifrastar að axla ábyrgð – „Mál að linni“