
Umboðsmaður Alþingis hefur lokið meðferð sinni á kvörtun ónefnds aðila vegna sölu Kirkjugarða Reykjavíkur á aðventuskreytingum og leiðisgreinum fyrir jólin sem viðkomandi segir valda rekstraraðilum blómabúða tjóni.
Kvörtunin barst um miðjan nóvember síðastliðinn. Segir umboðsmaður að þótt Kirkjugarðar Reykjavíkur séu sjálfseignarstofnun falli þeir undir reglur um opinbera stjórnsýslu þar sem mælt sé fyrir um starfsemina í lögum og að þeir njóti framlaga úr ríkissjóði.
Umboðsmaður segir hins vegar að ekki komi fram í kvörtun viðkomandi hvort hann hafi lagt athugasemdir sínar um starfshætti Kirkjugarða Reykjavíkur fyrir stjórn stofnunarinnar. Með hliðsjón af þeim lögum og reglum sem gildi um starfsemi Kirkjugarða Reykjavíkur telur umboðsmaður rétt að viðkomandi freisti þess að leita til stjórnar Kirkjugarða Reykjavíkur og eftir atvikum til kirkjugarðaráðs í kjölfarið sé hann ósáttur við afstöðu stjórnarinnar til málsins.
Í bréfi umboðsmanns til kvartandans segir enn fremur að þar sem hann telji athafnir Kirkjugarða Reykjavíkur skaðlega fyrir samkeppni á þeim markaði sem blómabúðir starfi þá beri að taka fram að það sé Samkeppniseftirlitið sem annist eftirlit samkvæmt samkeppnislögum.
Það sé hlutverk Samkeppniseftirlitsins að gæta þess að aðgerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni og að benda stjórnvöldum á leiðir til þess að gera samkeppni virkari og auðvelda aðgang nýrra samkeppnisaðila að markaði. Samkeppniseftirlitið geti gripið til aðgerða gegn athöfnum opinberra aðila að því marki sem þær kunni að hafa skaðleg áhrif á samkeppni að því tilskildu að sérlög hafi ekki að geyma sérstakar reglur um heimild eða skyldu til slíkra athafna.
Umboðsmaður segir að þar sem ekkert liggi fyrir um að kvartandinn hafi beint erindi til Samkeppniseftirlitsins vegna athugasemda hans við þá háttsemi Kirkjugarða Reykjavíkur sem hann telji hafa skaðleg áhrif á samkeppni og eftir atvikum kært ákvörðun eftirlitsins um erindið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála séu ekki uppfyllt skilyrði til að umboðsmaður taki kvörtunina til meðferðar að þessu leyti.
Beinir umboðsmaður því að lokum til kvartandans að hann geti leitað til sín að nýju þegar niðurstaða Kirkjugarðanna og Samkeppniseftirlitsins liggi fyrir.