fbpx
Mánudagur 19.janúar 2026
Fréttir

Hestamönnum neitað um aðgengi að Hvaleyrarvatni

Jakob Snævar Ólafsson
Föstudaginn 12. desember 2025 07:30

Hvaleyrarvatn. Mynd: Steinninn - Wikimedia Commons- CC.BY.4.0.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umhverfis- og framkvæmdaráð Hafnarfjarðar hefur hafnað beiðni Hestamannafélagsins Sörla um aðgengi hestamanna að Hvaleyrarvatni og stígum þar í kring.

Hestamönnum verður þar af leiðandi meinað að fara á hestum sínum að vatninu og á stígana þar nærri. Byggir ráðið synjunina á umsögn Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Seltjarnarnes.

Miðað við beiðnina virðist þó slíkt bann hafa verið í gildi og ekki verður þá breyting á því.

Í umsögn Heilbrigðiseftirlitsins segir meðal annars að umhverfi Hvaleyrarvatns sé viðkvæmt og vatnið frekar snautt og vatnsskipti fremur hæg og sé hætta á að umferð hesta geti raskað viðkvæmum gróðri á bökkum og botngróðri, sem sé mikilvægur veiðistaður fugla.

Þá sé hætta á að hestar losi upp botnset sem valdi gruggi sem hafi slæm áhrif á ljósskilyrði fyrir þörunga og annan botngróður. Aukin umferð hesta í og við vatnið geti haft þær afleiðingar að hrossatað hafi áhrif á næringarefni í vatninu sem geti leitt til ofauðgunar og þannig haft áhrif á afkomu annarra dýrategunda svo sem fiska og fugla.

Vatnið sé lítið og fiskistofnar háðir seiðasleppingu og sé afkoma þeirra því mjög viðkvæm fyrir breytingum á vatnsgæðum. Þá sé Hvaleyrarvatn eitt helsta fuglasvæði í landi Hafnarfjarðar, og megi þar finna bæði vatna- og votlendisfugla auk þess sem öflug skógrækt við vatnið hafi dregið að nýjar tegundir spörfugla.

Heilbrigðiseftirlitið segir það sitt mat að æskilegt sé að takmarka aðgengi hesta að Hvaleyrarvatni eins og mögulegt sé með hliðsjón af umhverfisþáttum og þeirrar einstöku náttúru sem þar sé að finna. Þá skapi umferð hestamanna hættu ef slík umferð sé of nálægt skipulögðum svæðum þar sem börn og unglingar séu að leik. Það sé því skynsamlegt að reiðstígar séu í nokkurri fjarlægð frá vatninu og frá þeim svæðum sem séu í skipulagðri skógrækt og annarri útivist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ólympíumeistari fyrir dóm – Sakaður um að hafa nauðgað barni

Ólympíumeistari fyrir dóm – Sakaður um að hafa nauðgað barni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Enn og aftur tapar Jeanine Pirro – Heimilislaus maður sýknaður á hálftíma fyrir að beina laser að þyrlu Trump

Enn og aftur tapar Jeanine Pirro – Heimilislaus maður sýknaður á hálftíma fyrir að beina laser að þyrlu Trump
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán Einar um vændismál Guðbrands – „Það eru menn sem virðast alltaf reiðubúnir að „kíkja í pakkann““

Stefán Einar um vændismál Guðbrands – „Það eru menn sem virðast alltaf reiðubúnir að „kíkja í pakkann““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Myndband: Stórkostleg stemning hjá íslenskum stuðningsmönnum eftir sigurinn gegn Ítalíu

Myndband: Stórkostleg stemning hjá íslenskum stuðningsmönnum eftir sigurinn gegn Ítalíu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Óhugnanleg tilfinning að menn sem ég hef unnið með hafi þessi viðhorf til kvenna“

„Óhugnanleg tilfinning að menn sem ég hef unnið með hafi þessi viðhorf til kvenna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nauðungarvistuð eftir að hún braust inn til þekkts fjárfestis og sagðist búa með honum

Nauðungarvistuð eftir að hún braust inn til þekkts fjárfestis og sagðist búa með honum