Dómarinn Mike Dean, sem leggur flautuna á hilluna að yfirstandandi tímabili loknu, sagði frá því í viðtali á BBC á dögunum hver væri erfiðasti stjórinn sem hann hefði mætt á ferli sínum sem dómari í ensku úrvalsdeildinni.
Nefndi Dean þar Arsene Wenger, fyrrum knattspyrnustjóra Arsenal. „Það hlýtur að vera Arsene þegar hann var hjá Arsenal,“ sagði Dean.
„Mér þótti það alltaf erfitt að dæma leiki Arsenal þegar hann var stjóri. Það var aðallega nærvera hans – hann vildi alltaf sínu liði best og reyndi hvað hann gat að yfirbuga mann.“
„Ég hef hitt hann eftir að hann hætti í fótbolta og hann hefur tekið vel á móti mér. Fólk breytist þegar það kemur út á knattspyrnuvöllinn, dómarar líka. Við erum venjulegt fólk.“
Frægt er þegar Dean rak Wenger upp í stúku í leik Manchester United og Arsenal á Old Trafford árið 2009 eftir að Wenger sparkaði í vatnsflösku í reiðiskasti þegar mark Van Persie var dæmt af vegna rangstöðu.
Sir Alex Ferguson var þekktur fyrir gefa dómurum í ensku úrvalsdeildinni slæma útreið en Dean segir hann ekki jafnslæman og margir héldu fram.
„Hann hlaut mikla gagnrýnni fyrir að segja að hann myndi koma og sparka niður hurðina,“ sagði Dean. „Hann kom stundum og tjáði manni skoðun sína þegar eitthvað mikið fór úrskeiðis, en hann var ekki jafnslæmur og fólk vill meina.“