fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
Fréttir

Kona stefndi líkamsræktarstöð eftir að hafa dottið í stiga – Dómarar fóru á staðinn og könnuðu aðstæður

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 10. mars 2022 18:30

mynd/GVA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var morgun einn árið 2019 að kona hugðist fara í hóptíma í líkamsræktarstöð. Á leið sinni upp á efri hæð  líkamsræktarstöðvarinnar féll konan í stiganum þannig að hún hitti ekki á tröppuna sem hún ætlaði að stíga í og féll á tröppuna fyrir ofan.  Við fallið fékk hún högg á vinstra læri og leitaði hún aðhlynningar á bráðamóttöku.

Í texta dómsins  segir um meiðslin:

„Skoðun læknis leiddi í ljós bólgu og mar um 5 cm fyrir ofan  hnéskel og að ekki væri að sjá að vöðvar eða festur hefðu farið í sundur. Spenna væri eðlileg, hreyfigeta óskert og líklega væri um að ræða blæðingu inn í vöðva. Fólst meðferð læknis að mestu í verkjastillingu. Í málinu liggja fyrir myndir af
áverkanum sem sýna stórt mar á vinstri fæti stefnanda sem nær allt frá ofanverðu læri og samfellt niður á neðanverðan kálfa.

Í læknisvottorði Heilsugæslunnar Y kemur fram eftirfarandi sjúkrasaga stefnanda hvað slysið varðar: Þann […] 2020 leitaði stefnandi til heilsugæslunnar vegna afleiðinga slyssins þar sem enn væru miklir verkir í fætinum. Lýst var að gróp væri á lærvöðva og í framhaldi af ómskoðun lagði læknirinn B til að fram færi segulómskoðun á fætinum til nánari greiningar. Niðurstöður segulómskoðunar lágu fyrir þann […] 2020 og voru þær að sjáanlegt væri mar á lærinu í fituvefnum undir húð en um minni háttar bólgu eða örvef væri að ræða. Engin merki væru um rof í vöðvanum og ekki væri að sjá nein áverkamerki annars staðar. Þann […] 2020 skoðaði C taugalæknir einnig stefnanda og taldi hann að hún hefði hlotið taugaskaða, líklegast viðvarandi, sem ylli verkjum, ofurnæmi og rýrnun á aðlægum vöðva. Í málinu liggur fyrir matsgerð D bæklunarskurðlæknis, dags. […] 2021. Helstu niðurstöður hans voru að tímabundinn missir starfsorku stefnanda teldist vera 10 dagar frá slysi og varanleg læknisfræðileg örorka teldist vera 5%. Fyrst hefði verið tímabært að meta afleiðingar slyssins einu ári eftir að það átti sér stað.“

Konan taldi slysið hafa stafað af ónógri lýsingu í stiganum auk þess sem tröppurnar hafi verið svartar. Taldi hún ónógan viðbúnað af hálfu líkamsræktarstöðvarinnar hafa valdið slysinu. Taldi hún sig því eiga rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu eigenda líkamsræktarstöðvarinnar. Þeir höfnuðu því og  sögðu atvikið hafa verið óhappatilvik  sem ekki væri hægt að rekja til saknæmrar vanrækslu.

Dómarar við héraðsdóm fóru á vettvang snemma morguns og könnuðu aðstæður álíkamsræktarstöðinni. Var það niðurstaða þeirra að aðbúnaður væri ófullnægjandi, stiginn of dimmur og slysahætta til staðar sem líkamsræktarstöðin bæri ábyrgð á.

Var viðurkennd skaðabótaskylda TM trygginga hf, tryggjanda stöðvarinnar, til konunnar.  Ennfremur þarf stöðin að greina konunni  rétt tæpa tvær milljónir króna í málskostnað.

Dóminn má lesa hér

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Tölvupóstar Epstein um Trump setja allt í háaloft – „Donald er fokking klikkaður“

Tölvupóstar Epstein um Trump setja allt í háaloft – „Donald er fokking klikkaður“
Fréttir
Í gær

Fasteignasali situr í súpunni vegna myglu

Fasteignasali situr í súpunni vegna myglu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rúmlega 4 þúsund Barnabónus pakkar afhentir nýbökuðum foreldrum

Rúmlega 4 þúsund Barnabónus pakkar afhentir nýbökuðum foreldrum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Karen lifði við ágæt lífsgæði en kemst nú varla fram úr rúminu – „Læknirinn yppti leiður öxlum og sagði að því miður gæti hann ekkert gert“

Karen lifði við ágæt lífsgæði en kemst nú varla fram úr rúminu – „Læknirinn yppti leiður öxlum og sagði að því miður gæti hann ekkert gert“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur segir vera holan hljóm í máli Loga

Eiríkur segir vera holan hljóm í máli Loga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir lík Geirfinns hafa verið flutt í bíl Svanbergs

Segir lík Geirfinns hafa verið flutt í bíl Svanbergs