fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Fréttir

Akstur 16 ára ökumanns stöðvaður í Miðborginni

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 16. desember 2021 05:06

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan hálf þrjú í nótt stöðvuðu lögreglumenn akstur 16 ára ökumanns í Miðborginni. Röng skráningarmerki voru á bifreiðinni sem var ótryggð og óskoðuð. Í henni voru þrír farþegar, allir yngri en 16 ára. Málið var unnið með aðkomu foreldra barnanna og Barnavernd gert viðvart um það.

Á þriðja tímanum var tilkynnt um líkamsárás í Hlíðahverfi. Árásarþolinn fór á Bráðadeild til aðhlynningar en hann var með áverka í andliti og á höfði. Meintur árásarmaður var handtekinn nokkru síðar og vistaður í fangageymslu.

Skömmu fyrir klukkan fjögur var maður í annarlegu ástandi handtekinn í Vesturbænum en hann var að valda ónæði þar. Hann var vistaður í fangageymslu.

Á sjöunda tímanum í gær var maður í annarlegu ástandi handtekinn í Kópavogi en hann er grunaður um hótanir. Hann var vistaður í fangageymslu.

Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um að vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna, ítrekaðan akstur án gildra ökuréttinda og vörslu fíkniefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Tekinn með bensínsprengju

Tekinn með bensínsprengju
Fréttir
Í gær

Tekur foreldrana á teppið í nýrri sjónvarpsauglýsingu Bónus

Tekur foreldrana á teppið í nýrri sjónvarpsauglýsingu Bónus
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að svona sé stjórnarandstaðan að ljúga að landsmönnum – „Þetta er ósatt. Þvæla“

Segir að svona sé stjórnarandstaðan að ljúga að landsmönnum – „Þetta er ósatt. Þvæla“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kjartan ómyrkur í máli: „Eitt mesta klúður í byggingarsögu Reykjavíkurborgar“

Kjartan ómyrkur í máli: „Eitt mesta klúður í byggingarsögu Reykjavíkurborgar“