fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Ísland fór létt með Kýpur í síðasta landsleik ársins

Ísak Gabríel Regal
Þriðjudaginn 30. nóvember 2021 18:57

Ingibjörg Sigurðardóttir í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu fór auðvelt með það kýpverska í undankeppni HM 2023 í kvöld. Þetta var síðasti leikur kvennalandsliðsins á árinu. Leikið var í Kýpur.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom Íslendingum yfir með marki beint úr aukaspyrnu eftir átta mínútna leik. Ísland réði lögum og lofum á vellinum í fyrri hálfleik og bætti við öðru marki átta mínútum síðar. Brotið var á Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur inn í vítateig kýpverska liðsins. Berglind fór sjálf á punktinn og skoraði af öryggi.

Sveindís Jane Jónsdóttir bætti við þriðja markinu á 37. mínútu eftir sendingu frá Karólínu Leu. Þetta var þriðja landsliðsmark Sveindísar í röð.

Ísland gerði nokkar breytingar á liðinu í seinni hálfleik. Hin 19 ára gamla Valskona Ída Marín Hermannsdóttir kom inn á í sínum fyrsta landsleik og Natasha Ansi, leikmaður Breiðabliks, kom inn á sínum fjórða.

Guðrún Arnardóttir bætti við fjórða markinu á 62. mínútu eftir sláarskot frá Karólínu Leu og þar við sat. 4-0 sigur Íslands staðreynd sem er í 2. sæti riðilsins með 9 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Hollands sem hefur leikið einum leik fleiri. Kýpur situr á botninum með 1 stig. Efsta lið riðilsins fer beint áfram á HM en liðið sem endar í 2. sæti fer í umspil.

Kýpur 0 – 4 Ísland
0-1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (‘8)
0-2 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (’16)
0-3 Sveindís Jane Jónsdóttir (’37)
0-4 Guðrún Arnardóttir (’62)

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan