fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
433Sport

Svíþjóð: Sveindís Jane hetja Kristianstads – Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í enn öðrum sigri Rosengard

Ísak Gabríel Regal
Sunnudaginn 12. september 2021 14:57

Sveindís Jane í leik með íslenska landsliðinu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sveindís Jane Jónsdóttir reyndist hetja Kristianstads sem tók á móti Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Sif Atladóttir og Sveindís Jane voru báðar í byrjunarliðinu og það var hin unga og efnilega Sveindís Jane sem skoraði sigurmark Kristianstads á 51. mínútu.

Sveindís hefur nú skorað fimm mörk í þrettán deildarleikjum á tímabilinu en hún kom á láni frá þýska liðinu Wolfsburg í sumar.

Með sigrinum fór Kristianstads fyrir ofan Linköping í 5. sæti með 24 stig. Linköping er í 6. sæti með 21 stig. Kristianstads á enn möguleika á að enda í einum af þremur efstu sætunum í deildinni þegar sex leikir eru eftir af tímabilinu.

Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í liði Rosengard sem hélt stöðu sinni á toppnum með 2-1 sigri á Hammarby.  Rosengard hefur staðið sig frábærlega á tímabilinu en liðið hefur enn ekki tapað leik.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir var í byrjunarliði Hammarby en kom af velli stuttu fyrir leikslok. Hammarby er í 4. sæti með 24 stig, líkt og Kristianstads.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“
433Sport
Í gær

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?