

Jerome Boateng varnarmaður Lyon í Frakklandi og fyrrum leikmaður FC Bayern mætti í réttarsal í morgun. Ástæðan er ákæra á hendur honum fyrir að hafa beitt fyrrum eiginkonu sína ofbeldi,
Sherin Senler, fyrrum eiginkona Boateng, sakar hann um ofbeldi sem á að hafa átt sér stað árið 2018. Sakar Senler Boateng um að hafa kastað lampa og fleira í Senler í sumarfríi árið 2018.
Boateng hefur átt farsælan knattspyrnuferil en hann lék lengst af með Bayern en einnig með Manchester City. Hann varð heimsmeistari árið 2014 með Þýskalandi.
Kasia Lenhardt 25 ára fyrirsæta í Þýskalandi fannst látin í íbúð sinni í Berlín á síðasta ári. Þá var rúm vika liðin síðan að Lenhardt og Boateng slitu sambandi sínu. Þýskir fjölmiðlar greindu frá því að Kasia hafi fundist látin í lúxusíbúð í eigu Boateng. Íbúðin er staðsett í Charlottenborg hverfinu í Berlín.
Þar segir enn fremur að Kasia sé talin hafa tekið eigið líf sama dag og sonur hennar fagnaði sex ára afmæli sínu.
Málsvörn Boateng byggist á því að hann hafi verið að verjast árás frá Senler. Hann sakar hana um að hafa slegið sig og hann hafi því ýtt henni frá sér. Ekki kom fram hvenær dómur verður kveðinn upp.