
Þýskaland er Evrópumeistari U21 í knattspyrnu. Í úrslitaleik mótsins áttust við Þýskaland og Portúgal og höfðu Þjóðverjar betur og unnu 1-0 sigur.
Fyrsta og eina mark leiksins kom á 49. mínútu. Það var Nmecha sem skoraði markið eftir flottan bolta frá Ridle Baku. Þetta var fjórða mark Nmecha á Evrópumótinu og er hann markahæsti leikmaður mótsins.
Portgúlar reyndu hvað þeir gátu til þess að jafna leikinn en vörn Þýskalands hélt vel og Dahmenn var frábær í markinu.
Þýskaland 1 – 0 Portúgal
1-0 Nmecha (´49)
THAT'S IT!!!! 🥳🎉
GERMANY ARE 2021 EUROPEAN U21 CHAMPIONS! 🏆🇩🇪#U21EURO #GERPOR 1-0 pic.twitter.com/gJipxtPAw2
— Germany (@DFB_Team_EN) June 6, 2021