
Newcastle tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leiknum lauk 2-2 eftir mikla dramatík.
Gestirnir frá Lundúnum byrjuðu leikinn af miklum krafti en heimamenn komu sér þó fljótlega inn í leikinn. Til að mynda fengu þeir frábært tækifæri til að komast yfir á 19. mínútu en þá sá Hugo Lloris, markvörður Tottenham, meistaralega við Dwight Gayle í tvígang.
Um 10 mínútum síðar tókst Newcastle þó að skora. Þar var að verki Joelinton eftir flottan undirbúning Sean Longstaff.
Gleðin varði þó ekki lengi hjá Norðanmönnum en Harry Kane jafnaði tæpum tveimur mínútum síðar. Þá potaði hann boltanum í netið eftir smá darraðadans inni á teig heimamanna.
Fjórum mínútum síðar tókst Kane að skora aftur og breyta stöðunni í 1-2. Tanguy Ndombele stakk boltanum þá skemmtilega inn fyrir vörn Newcastle, á Kane, sem kláraði vel í fjærhornið. Magnaðar 6 mínútur á Norður-Englandi!
Newcastle fékk fullt af færum til að jafna í seinni hálfleik og var Hugo Lloris í fantastuði í markinu. Þá tókst gestunum ekki að klára leikinn með þriðja markinu þrátt fyrir að hafa fengið færi til þess.
Á 85. mínútu tókst Newcastle loks að koma boltanum í netið og var þar að verki Joe Willock. Hann dúndraði boltanum þá í þaknetið eftir að boltinn féll fyrir hann í teignum.
Tottenham reyndi að sækja sigurinn í uppbótartímanum en allt kom fyrir ekki. Lokatölur 2-2.
Tottenham fer upp í 5.sæti á markatölu með sigrinum. Newcastle er þremur stigum fyrir ofan fallstæti.