fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
433Sport

Slæm staða Newcastle eftir tap gegn Brighton í kvöld

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 20. mars 2021 21:56

Danny Welbeck Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Newcastle reið ekki feitum hesti frá viðureigninni við Brighton í ensku úrvalsdeildinni nú í kvöld. Brighton sigraði 3-0 og var raunar nær því að bæta við fjórða markinu en Newcastle að minnka muninn.

Brighton komst yfir á 45. mínútu þegar Leandro Trossard skoraði. Þegar flautað var til hálfleiks var staðan 1-0. Á 51. mínútu skoraði Danny Welbeck annað mark Brighton með góðu skoti utan teigs. Á 68. mínútu bætti Neal Maupay þriðja markinu við og innsiglaði öruggan sigur Brighton.

Brighton er nú með 32 stig í fimmta neðsta sæti deildarinnar. Newcastle er með 28 stig í fjórða neðsta sæti, aðeins tveimur stigum fyrir ofan Fulham. WBA er þar fyrir neðan með 18 stig og Sheffield United er á botninum með 14 stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Pogba
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum
Staðfesta komu Pogba
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Brad Pitt kom mörgum á óvart með þessum ummælum – ,,Ég elska þennan gaur!“

Brad Pitt kom mörgum á óvart með þessum ummælum – ,,Ég elska þennan gaur!“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ekki myndaður í nýju treyjunni og er líklega á förum

Ekki myndaður í nýju treyjunni og er líklega á förum