fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Ronaldo svarar gagnrýnendum – „Sannir meistarar brotna aldrei“

Aron Guðmundsson
Sunnudaginn 14. mars 2021 15:50

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus, hefur fengið mikla gagnrýni á sig eftir að Juventus féll úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu geng portúgalska liðinu Porto.

Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Ronaldo hjá ítalska stórveldinu en talið er að Juventus vilji losa sig við kappann sem er á ofurlaunum hjá félaginu.

Ronaldo hóf raust sína á samfélagsmiðlum og blés á gagnrýnisraddir.

„Það sem skiptir meira máli en hversu oft þú fellur er hversu oft og hratt þú stendur aftur upp. Sannir meistarar brotna aldrei,“ er meðal þess sem Cristiano Ronaldo skrifaði á samfélagsmiðlinum Instagram.

Ronaldo hefur unnið flesta af helstu titlum sem hægt er að vinna með félags- og landsliðum. Þá hefur hann í fjórgang verið valinn besti leikmaður í heimi.

„Sögunni verður ekki eytt, hún er skrifuð á hverjum einasta degi með seiglu, liðsanda, þrautseigju og erfiðisvinnu,“ skrifaði Ronaldo á Instagram.

Talið er að möguleiki sé að því að Ronaldo snúi aftur til Real Madrid en Zinedine Zidane, knattspyrnustjóri liðsins, neitaði að útiloka endurkomu Ronaldo til félagsins.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Eddie Howe horfir í gamla félagið

Eddie Howe horfir í gamla félagið