Amor leggur ekki bogann á hilluna þó að samkomubann sé við lýði. Skjóta má ástarörvum út um glugga eða í formi bréfa í gegnum samfélagsmiðla og lúgur án þess að þríeykið nötri. Nokkrar íslenskar ofurkonur eru á lausu sem eiga það allar sameiginlegt að vera eldklárar í viðskiptum og hafa komið að fyrirtækjarekstri með góðum árangri. Íslenskar konur eru sannkallað náttúruafl.
Má þá til dæmis nefna Soffíu Steingrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og einn eigenda Kvennablaðsins, Sprettu og Sagafilm. Soffía er ekki bara eldklár í viðskiptum og vinnusöm því hún þykir líka áberandi skemmtileg auk þess sem hún bjargar mannslífum í starfi sínum hjá Landspítalanum.
Íris Björk Tanya Jónsdóttir, hönnuður og eigandi Vera Design, hefur stofnað ófá fyrirtæki með góðum árangri. Hún hefur rekið tískuverslanir, hannað heimili og skartgripi og þykir ákaflega smekkleg. Íris getur komið hugmynd af blaði yfir í verslun á undraverðum tíma og virðist hanna nýtt herbergi á heimili sínu á tveggja mánaða fresti.
Gyða Dan Johansen, fyrrverandi hluthafi og stjórnarkona í Emmessís og fyrrverandi eiginkona Ara Edwald, er þekkt fyrir að vera hrókur alls fagnaðar og hugmyndarík. Hún er útsjónarsöm í viðskiptum og ákaflega vel liðin.
Síðast en ekki síst má nefna Guðlaugu Kristbjörgu Kristinsdóttur, framkvæmdastjóra Stekks fjárfestingafélags og stjórnarformann Kviku Eignarstýringar, Securitas og Límtrés Vírnets. Gulla, eins og hún er kölluð, er sjarmasleggja með mikinn áhuga á útivist og laxveiðum og er vinmörg og vinsæl.