fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Hressingarhælið í Kópavogi fær nýtt hlutverk

Heimir Hannesson
Laugardaginn 10. október 2020 09:43

mynd/Kópavogur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hressingarhælið í Kópavogi verður héðan af nýtt í þágu lýðheilsu og geðræktar. Þetta kemur fram í tilkynningu Kópavogsbæjar. Segir þar að stefnt verði að því að þar verði haldin námskeið og erindi á sviði geðræktar til að efla andlega heilsu íbúa en í fyrstu verður áhersla lögð á að vinna með börnum og ungmennum.

Verkefnið er unnið eftir tillögu stýrihóps um lýðheilsu en þar kemur fram að brýnt sé að leggja rækt við andlega heilsu barna og ungmenna en nýleg skýrsla Unicef sýndi að styrkja þurfi félagsfærni íslenskra ungmenna. Þá er andleg vanlíðan ein helsta ástæða skertra lífsgæða í dag samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, að því er segir í tilkynningunni.

Anna Elísabet Ólafsdóttir, sérfræðingur lýðheilsumála hjá Kópavogsbæ, segir: „Að nýta gamla hressingarhælið sem miðstöð fræðslu og færniþjálfunar á sviði geðræktar er gott og mikilvægt verkefni. Geðrækt og andleg líðan hefur verið mikið til umræðu undanfarin misseri þó hefur hún sjaldnast verið meiri en nú á tímum heimsfaraldurs. Börnin okkar og ungmenni hafa kallað eftir meiri sálfræðilegum stuðningi og þetta nýsköpunar og þróunarverkefni er eitt af því sem við ætlum að gera til að svara því kalli.“

Merkileg saga hússins

Húsið stendur við Kópavogsgerði og var þar reist sem hæli fyrir útskrifaða berklasjúklinga að frumkvæði kvenfélagsins Hringsins árið 1926. Arkitekt þess var Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins.

Síðar var húsið notað sem holdsveikraspítali og húsnæði Þroskaþjálfaskólans.

Kópavogsbær hefur látið gera húsið upp að miklu leyti á undanförnum árum. Segir í tilkynningu Kópavogsbæjar að lagfæringar á ytra byrði hússins er að mestu lokið og hefur umhverfi hússins verið lagfært, hellulagt og tyrft.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“
Fréttir
Í gær

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga

Óskað eftir tilnefningum til fegrunarviðurkenninga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast