fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Saka Hezbollah um að safna vopnum og ammoníumnítrati í Evrópu

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 18. september 2020 19:02

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísk stjórnvöld saka hryðjuverkasamtökin Hezbollah um að vera að sanka að sér vopnum og ammoníumnítrati víða í Evrópu. Þetta er sagt vera geymt víða í álfunni og eigi að nota í hryðjuverkaárásum í framtíðinni, árásum sem stjórnvöld í Íran muni fyrirskipa.

The Guardian skýrir frá þessu. Fram kemur að það hafi verið Nathan Sales, hjá gagnhryðjuverkadeild varnarmálaráðuneytisins, sem hafi sagt þetta og um leið hvatt Evrópuríki til að taka harðar á Hezbollah.

Ásakanirnar koma sex vikum eftir hina gríðarlegu sprengingu í Beirút í Líbanon þar sem vörugeymsla full af ammoníumnítrati sprakk með hörmulegum afleiðingum. Efnið hafði verið þar í sex ár. Hezbollah er sagt hafa mikil áhrif á rekstur hafnarinnar í Beirút.

Sales sagði að vopn frá Hezbollah hafi verið flutt í gegnum Belgíu, til Frakklands, Grikklands, Ítalíu, Spánar og Sviss. Einnig hafi yfirvöld lagt hald á mikið magn af ammoníumnítrati í Frakklandi, Grikklandi og á Ítalíu.

Hann varpaði fram spurningu um af hverju Hezbollah væri að geyma ammoníumnítrat í Evrópu og sagði að svarið væri augljóst. Þá sé hægt að fremja stór hryðjuverk hvar sem þörf er á að mati stjórnendanna í Teheran.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Í gær

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala

Vísindamenn gerðu einstaka uppgötvun í helli undir kastala
Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“