Núverandi takmarkanir á landamærum vegna kórónuveirufaraldursins, sem fela í sér tvöfalda skimun allra sem koma til landsins, með 5-6 daga sóttkví á milli, verða endurskoðaðar þann 27. september. Líkur eru á því að ekki verið slakað á þessum kröfum ef marka mátti mál Þórólfs Guðnasonar á upplýsingafundi dagsins. Hann hefur tekið saman minnisblað um áframhald aðgerða en vill ekki upplýsa um innihald þess að svo stöddu.
Búast má við tilslökunum á samkomubanni innanlands um miðjan mánuðinn en Þórólfur segir að mikilvægt sé að slaka á í skrefum og meta árangur af hverju skrefi áður en frekari tilslakanir séu ákveðnar.
Á bilinu 4-6 hafa verið að greinast með veiruna undanfarið, eru það allt smit úr sama stofni veirunnar og glímt verið verið frá því upp úr miðju sumri. Smitum á landamærum fjölgar hlutfallslega og undanfarið hefur hlutfallið verið 0,3% en það var í júní og júní 0,03%. Má skýra það að hluta til með því að faraldurinn er í sókn í mörgum nágrannalöndum okkar.