fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Ólafur vill svona breytingar á menntakerfinu – „Kennararnir verða þá loksins þjónar barnanna, en ekki fangelsisstjórar”

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 23. júlí 2020 10:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta var nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Í viðtalinu fóru þeir Sölvi um víðan völl og ræddu meðal annars um mikilvægi þess að þora að fara út fyrir boxið. Eins og þekkt er hefur Ólafur vægast sagt farið óhefðbundnar leiðir undanfarin ár.

„Þú getur alveg sett tappa í eyrun og gert þitt og dáið og eitthvað svona, en hey! Ég meina common! Langar þig ekki að skoða galdrana?” sagði Ólafur þegar hann var spurður um hvort að hann væri aldrei hræddur við að fólki héldi að hann væri búinn að missa það.

Þetta er eins og í öllum góðum ævintýramyndum. Hetjan þarf að leggja sig í hættur og sumir koma ekki til bakaþú getur klúðrað öllu á yfirborðinu og fólk spyr: Hvað varð um þennan gaur, hann var einu sinni þetta og hitt“ en ég er alltaf mín þjóðhetja,

Það eru alls konar gildrur á leiðinnisumir verða allt of heilagir og margir festast í alls konar, en svo ég taki spoiler á þetta þá er endastöðin alltaf hér og nú. Þessi stund hérna hjá okkurÍ raun og veru snýst andleg vegferð um að fá aftur skynjunina sem þú hafðir sem barn. Í mjög stuttu máli.

Ólafur vinnur mikið með börnum og hefur sterka skoðun á menntakerfinu, en í viðtalinu ræddi hann mikið um hvernig mætti bæta það.

Hversu sturlað er það að prófa ekki eitthvað allt annað? Mín tillaga er sú að það verði gerð tilraun, þar sem börn fá bara að gera það sem þau vilja. Það er skóli. Að treysta skynjun barnanna og innsæi barnanna og snúa þessu við. Þetta yrði skemmtilegasta jobb í heimi að fá að horfa á barn gera það sem það vil. Kennararnir verða þá loksins þjónar barnanna, en ekki fangelsisstjórar.”

Ólafur segist ekki vilja hljóma neikvæður, en hann telur að við séum meira og minna öll undir álögum aðalnámskrár. Það sé komið árið 2020 og tæknin geri okkur kleyft að gera alls kyns breytingar sem muni verða mjög til góðs.

Ef við myndum hvíla aðalnámskrá í ákveðinn tíma, það myndi krefja okkur að þurfa að finna tæknilausnir til að stýra kerfinu miðað við nútímann. Við gætum búið til einhvers konar Uber” fyrir skóla. Ef einhver þarf leigubíl, þá er leigubílstjóri klár. Gætum við hannað einhvers konar kerfi, þar sem kennararnir væru í startholunum sem leigubílstjórar, hver með sína sérþekkingu? Allir elska að kenna það sem þeir elskaÁ öðrum endanum er manneskja sem brennur fyrir eitthvað innst inni og á hinum endanum er manneskja sem elskar að læra eitthvað. Ef við getum tæknilega fundið einhverja leið til að láta þessar manneskjur mætast þegar þær vilja mætast, búum það til og málið er dautt!”

Í viðtalinu fóru Sölvi og Ólafur einnig yfir bræðralagið sem myndaðist hjá Silfurliðinu á Ólympíuleikunum í Peking og margt fleira. Hér að neðan er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni.

https://www.youtube.com/watch?v=NyzA2RQ6FRs

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“