fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026

Fróðleg og þörf saga, en skortir persónudýpt

Bókardómur

Kolbrún Bergþórsdóttir
Miðvikudaginn 13. desember 2017 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Út er komin ævisagan Minn tími, sem fjallar um ævi og störf Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi forsætisráðherra. Í bókinni er rakin saga þessa mikla stjórnmálaskörungs, sem einkennist af baráttu fyrir högum þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu, milli þess sem Jóhanna ryður leiðina fyrir konur í stjórnmálum, uppgötvar kynhneigð sína og finnur ástina.

Uppbygging bókarinnar er nokkuð hefðbundin og línuleg í tíma. Höfundur rekur helstu atburði og er að mestu leyti í hlutverki hlutlægs stjórnmálaskýranda, líkt og siður er. Jóhanna skrifar síðan eins konar ítarefni í fyrstu persónu um helstu atburðina, þar sem lesandanum er hleypt inn í bakherbergin, inn fyrir veggi heimilisins og að einhverju leyti inn í hugarheim hennar sjálfrar. En líkt og svo oft er með bækur eins og þessar, þá er það síðastnefnda atriðið sem hefði mátt fara meira fyrir.

Bókin er fyrst og fremst fróðleg lesning fyrir þá sem fræðast vilja um farsælan starfsferil áberandi stjórnmálakonu, sem á vafalaust meira hrós skilið en hún hefur fengið. Hluti skýringarinnar er þó án efa sá að Jóhanna virðist laus við hégóma, hefur aldrei verið mikið fyrir sviðsljósið, eða að „opna sig“ í fjölmiðlum, líkt og segir í bókinni. Þó svo vissulega sé gerð tilraun til þess að mýkja ásjónu þeirrar hörkulegu ímyndar sem Jóhanna hefur ávallt haft sem stjórnmálakona, fer hún að mestu út um þúfur, þar sem lesendum gefst lítið færi á að kynnast persónunni sjálfri utan vinnunnar. Þess vegna verður bókin heldur alvöruþrungin, sem er alls ekki reglan þegar fjallað er um stjórnmálamenn, heldur kannski frekar vitnisburður um persónugerð Jóhönnu. Því þó svo ljóst sé með lestri bókarinnar að Jóhanna hafi vissulega kímnigáfu, hefði kannski mátt gera meira úr því svo lesandinn næði dýpri tengingu við umfjöllunarefnið. Einnig hefði mátt helga fleiri blaðsíður uppvaxtarárunum, sem eru svo mótandi í lífi hvers og eins. Þá er lokakafli bókarinnar, um lífið eftir „baráttuna við karlana“ vissulega hjartnæmur í krafti umskiptanna frá pólitíkinni yfir í ástina, jafnvel svo að lesandinn kemst við. En meiri innsýn í hugarheim Jóhönnu hefði vissulega verið vel þegin, en ekki er þó víst að þess hafi gefist kostur.

Eftir stendur að saga stjórnmálakonunnar Jóhönnu Sigurðardóttur á erindi til allra Íslendinga, ekki síst þeirra sem lítið þekkja til starfa hennar. Barátta hennar fyrir þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu verður ávallt í minnum höfð og áhrif hennar í kvenréttindabaráttunni verða aldrei ofmetin. Jóhanna Sigurðardóttir er án efa einn mikilvægasti stjórnmálamaður sem Ísland hefur átt og án efa mikilvægasta stjórnmálakonan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Björn Valur ósáttur og gagnrýnir Ingu Sæland – „Hver stendur með kennurum – ef einhver?“

Björn Valur ósáttur og gagnrýnir Ingu Sæland – „Hver stendur með kennurum – ef einhver?“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Carragher fékk það óþvegið í Bítlaborginni – Sjáðu myndbandið

Carragher fékk það óþvegið í Bítlaborginni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Stefnuskrá dularfulla njósnafyrirtækisins vekur óhug – „Það verður að stöðva Palantir“

Stefnuskrá dularfulla njósnafyrirtækisins vekur óhug – „Það verður að stöðva Palantir“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Staðfesta ráðningu á eftirmanni Iraola

Staðfesta ráðningu á eftirmanni Iraola
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Eyjólfur Ármannsson: Myndi vilja sjá það sama hjá okkur og á Möltu

Eyjólfur Ármannsson: Myndi vilja sjá það sama hjá okkur og á Möltu
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Verður Kash Patel næstur til að fá reisupassann frá Trump ? – Starfsmenn FBI lýsa ofsóknarbrjálæði, drykkju og móðursýkisköstum

Verður Kash Patel næstur til að fá reisupassann frá Trump ? – Starfsmenn FBI lýsa ofsóknarbrjálæði, drykkju og móðursýkisköstum
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Albani ákærður fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Akureyri

Albani ákærður fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Akureyri
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á