fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Fréttir

Þórhallur miðill dæmdur í fangelsi fyrir að nauðga manni á nuddbekk

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 5. júní 2020 17:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag var átján mánaða fangelsisdómur miðilsins Þórhalls Guðmundssonar staðfestur í Landsrétti.

Um er að ræða kynferðisbrot gagnvart tvítugum manni, en Þórhallur var sakaður um að hafa nauðgað honum, með því að fróa honum án samþykkis þegar að brotaþoli lá á nuddbekk. Þórhallur átti að vera að veita manninum meðferð vegna bakverkja. Í dómnum segir:

„Er ákærða gefin að sök nauðgun með því að hafa í umrætt sinn fróað brotaþola án hans samþykkis, með því að beita hann ólögmætri nauðung  og  þannig misnotað  sér  það  traust  sem  brotaþoli  bar  til  hans  sem heilara  er  hann  lá  nakinn  á nuddbekk hjá ákærða.“

Þórhallur var einnig dæmdur til að greiða manninum 800.000 krónur í miskabætur.

Í dómnum kemur fram að mennirnir hafi kynnst á árunum 2006 til 2007, en atvikið sem dæmt var um átti sér stað árið 2010. Dæmt hafði verið í málinu í fyrra í Héraðsdómi Reykjaness og nú aftur í Landsrétti, en sama niðurstaða kom í bæði skiptin.

Í vitnisburði brotaþola kemur einnig fram að Þórhallur eigi að hafa reynt að hafa ítrekað samband við hann eftir umrætt atvik, eða „gjörsamlega non stopp“. Hann á einnig að hafa fundið fyrir mikilli vanlíðan í kjölfar atviksins. Þá kemur fram í dóminum að vitnisburður brotaþola hafi verið trúverðugur, ólíkt vitnisburði Þórhalls, sem þótti „ósannfærandi og ótrúverðugur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Þorleifur Kamban er látinn

Þorleifur Kamban er látinn
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Vandað atvinnuhúsnæði rís á Völlunum í Hafnarfirði

Vandað atvinnuhúsnæði rís á Völlunum í Hafnarfirði
Fréttir
Í gær

Góð tíðindi fyrir meinta Gilgo-raðmorðingjann Rex Heuermann

Góð tíðindi fyrir meinta Gilgo-raðmorðingjann Rex Heuermann
Fréttir
Í gær

Ásakanir um einelti á árshátíð laganema í HR – „Þetta var mjög niðurlægjandi“

Ásakanir um einelti á árshátíð laganema í HR – „Þetta var mjög niðurlægjandi“
Fréttir
Í gær

Bónus og viðskiptavinir styrkja Krabbameinsfélagið um 5 milljónir króna

Bónus og viðskiptavinir styrkja Krabbameinsfélagið um 5 milljónir króna
Fréttir
Í gær

Betur fór en á horfðist hjá ungum börnum í Reynisfjöru

Betur fór en á horfðist hjá ungum börnum í Reynisfjöru