Landhelgisgæslan varar við hafís undan Vestfjörðum. Síðustu daga hefur hafísrönd fært sig nær landi og var í um 30 sjómílna fjarlægð frá Straumnesi klukkan 21 á föstudagskvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu sem barst rétt í þessu.
Segir enn fremur í tilkynningu að á sunnudagskvöld sé spáð allhvassri vest-suðvestan átt á svæðinu og gæti ísinn þá færst nær landi.
„Meðfylgjandi kort sýnir ísbrúna sem varðskipið Týr fylgdi eftir aðfaranótt laugardags. Íshrafl og ísmolar geta verið utan svæðisins. Nokkur skip eru á veiðum við ísröndina.
Meginrönd hafíssins lá um eftirtalda punkta:
67°04´N – 023°40´V
66°59´N – 023°30´V
67°01´N – 023°47´V
66°45´N – 024°20´V
66°49´N – 024°40´V
66°11´N – 026°50´V
66°17´N – 027°24´V – Þaðan liggur ísinn til vest-suðvesturs“