fbpx
Mánudagur 03.nóvember 2025

Lesið í tarot Páls: „Hugsanlega er tíð hans á Landspítalanum lokið og eitthvað nýtt tekur við“

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 29. mars 2020 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið mæðir á Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítalans, um þessar mundir. Því fannst DV tilvalið að lesa í tarotspil Páls á þessum COVID-tímum og athuga hvað framtíðin ber í skauti sér. Lesendum er bent á að þeir geta sjálfir dregið sér tarotspil á vef DV.

Litlu vandamálin

Fyrsta spilið sem kemur upp hjá Páli er 5 stafir. Bersýnilega er Páll að takast á við gríðarlega stórt vandamál og áskorun ásamt sínu fólki á Landspítalanum. Hins vegar eru einnig smávægileg vandamál að angra hann, þó að honum sé bent á að þessi litlu vandamál skipti ekki máli í stóra samhenginu. Páll er hins vegar þannig maður að hann vill ekki láta neitt ósagt og gengur því í það að friða samviskuna, hvort sem vandamálin eru stór eða lítil. Hann er að nýta færni sína á sviði heilbrigðismála og rekstrar til hins ítrasta þessa dagana og mun breyta þessari reynslu í ávinning síðar meir.

Kaldur en tilfinninganæmur

Næst er það Bikarkonungur. Oft getur Páll virkað kaldur og lokaður karakter á þá sem ekki þekkja hann. Sökum sérfræðimenntunar sinnar og stöðu hefur hann búið sér til þann persónuleika út á við og tekur þessi persónuleiki æ meira yfir. Páll er tilfinninganæmur en á oft erfitt með að tjá tilfinningar sínar og á það til að skammast sín fyrir þær. Hann þarf að minna sig á skilin á milli vinnu og einkalífs og umlykja fólkið sitt heiðarleika og hlýju á þessum erfiðu tímum þar sem vinnan gleypir hann.

Kveður spítalann

Loks er það 4 sverð. Eftir að COVID-stormurinn er liðinn hjá kemur það Páli á óvart hve miklu hann hefur áorkað með skipulag, kraft og dugnað að vopni. Heimsfaraldurinn hefur tekið sinn toll og þarf Páll að hvíla sig vel og lengi eftir að stríðinu lýkur. Hann þarf að huga betur að áhugamálum sínum, en ekki síst heilsunni. Þó að líf hans einkennist af hraða þarf hann að gefa sér tíma til að staldra við og hlusta á líkamann og þarfir hans. Páll þarf að komast í snertingu við hina djúpu kyrrð en einnig velta fyrir sér hvort hann sé á þeim stað í lífinu sem hann vill vera. Hugsanlega er tíð hans á Landspítalanum lokið og eitthvað nýtt tekur við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 8 klukkutímum

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn

Björn Jón skrifar: Að staðsetja Sjálfstæðisflokkinn
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Hobbitinn ástsæli er kominn út í nýrri þýðingu – Lestu fyrsta kaflann hér

Hobbitinn ástsæli er kominn út í nýrri þýðingu – Lestu fyrsta kaflann hér
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Segir vont aðgengi að Keflavíkurflugvelli vegna bílastæðagjalda – Að leggja bílnum geti jafnvel kostað meira en flugfargjöld

Segir vont aðgengi að Keflavíkurflugvelli vegna bílastæðagjalda – Að leggja bílnum geti jafnvel kostað meira en flugfargjöld
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Hlédís gagnrýnir gellupólitík – „Staðreyndin er sú að konur skipa flest æðstu embætti í dag“

Hlédís gagnrýnir gellupólitík – „Staðreyndin er sú að konur skipa flest æðstu embætti í dag“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Óhugnanlegt kynferðisbrotamál ungmenna á Suðurnesjum – Dreifðu myndbandi af nauðgun gegn ólögráða stúlku á Snapchat

Óhugnanlegt kynferðisbrotamál ungmenna á Suðurnesjum – Dreifðu myndbandi af nauðgun gegn ólögráða stúlku á Snapchat
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Er allt í klessu hjá Tottenham? – Sjáðu þegar tveir leikmenn liðsins neituðu að taka í hönd Thomas Frank

Er allt í klessu hjá Tottenham? – Sjáðu þegar tveir leikmenn liðsins neituðu að taka í hönd Thomas Frank
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Foreldrar fá að sjá nöfn og myndir af dæmdum níðingum

Foreldrar fá að sjá nöfn og myndir af dæmdum níðingum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.