Hér fyrir neðan má sjá stikluna fyrir Stellu Blómkvist en um er að ræða nýja íslenska sjónvarpsþáttaröð í sex hlutum sem frumsýnd verður í nóvember næstkomandi. Þættirnir eru sex talsins og byggðir á bókunum um samnefnda söguhetju en höfundur þeirra hefur ætíð farið huldu höfði.
Í tilkynningu segir að Stella Blómkvist sé „sakamálasería í noir stíl þar sem við fylgjum eftir andhetjunni, tálkvendinu og lögfræðingnum Stellu Blómkvist, sem fetar sínar eigin slóðir – helst yfir tærnar á valdamiklu fólki sem hefur eitthvað að fela.“
Sagafilm stendur að baki framleiðslunni en þáttaröðin mun verða aðgengileg í heild sinni frá fyrsta degi. Leikstjóri er Óskar Þór Axelsson og er það Heiða Rún Sigurðardóttir, einnig þekkt sem Heida Reed sem fer með hlutverk Stellu.