fbpx
Mánudagur 15.september 2025

Lesið í tarot Jóns Viðars: Gerir upp fortíðina

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 23. febrúar 2020 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Viðar Arnþórsson, einn stofnenda Mjölnis, leitar nú að kaupanda að hlut sínum í íþróttafélaginu en hann er einn af stærstu eigendunum með 14,71 prósents hlut. DV ákvað að leggja tarot fyrir Jón Viðar og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Lesendur geta sjálfir dregið tarotspil á vef DV.

Sérstök manneskja

Fyrsta spil sem kemur upp er 2 bikarar. Það táknar sérstaka manneskju sem á stóran þátt í daglegu lífi Jóns Viðars. Þar ríkir traust, heiðarleiki og gagnkvæm virðing. Jón Viðar hrífst af þessari manneskju og treystir henni fyrir sínum dýpstu óskum og leyndarmálum. Það ríkir mjög gott jafnvægi í sambandinu. Hins vegar virðist einhvers konar ósætti hafa átt sér stað en nú er það á bak og burt, enda afar lítilfjörlegt í stóra samhenginu. Hugsanlega er trúlofun eða gifting í vændum.

Stór viðburður

Svo er það Keisaraynjan. Aftur kemur upp stór viðburður í lífi Jóns Viðars; gifting eða barnsburður birtist hér. Það ríkir mikil vellíðan í ástarsambandi sem hann er í. Þar ríkir kærleikur, heiðarleiki og hrein vinátta. Saman skapa þau eftirsóknarvert umhverfi sem er umlukið hlýju, umhyggju og aðhaldi. Það er gaman að vera í kringum Jón Viðar og í fyrsta sinn í langan tíma er hann afar sáttur við sjálfan sig.

Breytingar til batnaðar

Loks er það spilið Breytingar. Það er kafli senn á enda, sá kafli sem tengist Mjölni. Nýr er um það bil að hefjast og það er tími til að fagna þessum breytingum, enda eru þær til batnaðar. Aftur kemur upp mikilvægur viðburður, en nú tengist hann nýju starfi eða flutningi. Jón Viðar er minntur á að breytingar geta verið erfiðar í fyrstu en þessar breytingar hafa ekkert nema gott í för með sér. Um leið og Jón Viðar stendur í þessum breytingum verður hann að gera upp fortíðina, gefa hana upp á bátinn og bjóða nýja kaflann velkominn með allri sinni gleði og hamingju.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Skrif Gunna Helga um vælukjóa frá Akureyri vekja athygli – „Skiptir auðvitað engu máli núna“

Skrif Gunna Helga um vælukjóa frá Akureyri vekja athygli – „Skiptir auðvitað engu máli núna“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Ætlar ekki að sætta sig við það að vera varaskeifa hjá Liverpool

Ætlar ekki að sætta sig við það að vera varaskeifa hjá Liverpool
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

FKA konur í laxveiði – kraftur, gleði og maríulaxar

FKA konur í laxveiði – kraftur, gleði og maríulaxar
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Hryllingurinn við Skyggnisbraut fyrir dóm – Hamed ákærður fyrir manndrápstilraun

Hryllingurinn við Skyggnisbraut fyrir dóm – Hamed ákærður fyrir manndrápstilraun
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Vendingar í stóra skákborðsmálinu – Páli í Pólaris gert að greiða hálfa milljón í viðbót

Vendingar í stóra skákborðsmálinu – Páli í Pólaris gert að greiða hálfa milljón í viðbót
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Er þétta lélegasti svikapóstur undanfarinna missera? – „Þú ert undirorpinn ýmsum lagalegum málsmeðferðum“

Er þétta lélegasti svikapóstur undanfarinna missera? – „Þú ert undirorpinn ýmsum lagalegum málsmeðferðum“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Elon Musk bálreiður vegna viðbragða við ummælum stjörnunnar um Charlie Kirk

Elon Musk bálreiður vegna viðbragða við ummælum stjörnunnar um Charlie Kirk
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið

Fékk handskrifaðan miða og 5000 kr. fyrir leigubíl áður en hann sótti dularfullan myndaramma á pósthúsið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.