fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Pressan

Sænskur stjórnmálamaður segir augljóst að glæpaaldan í landinu sé tilkomin vegna of margra innflytjenda

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 21. nóvember 2019 06:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, er í eldlínunni þessa dagana eftir að hann vék sér undan því í viðtali í sænsku sjónvarpi að tengja hina miklu glæpaöldu og starfsemi glæpagengja í landinu við innflytjendur. Löfven sagði að ekki ætti að tengja umræðuna við ákveðna samfélagshópa. Eftir mikinn þrýsting frá flokkssystkinum sínum í jafnaðarmannaflokknum og frá stjórnarandstöðunni skrifaði hann færslu á Facebook þar sem hann viðurkenndi að aðlögun innflytjenda að sænsku samfélagi sé undir þrýstingi.

„Það er hætta á glæpum.“

Skrifaði Löfven.

Áður en hann skrifaði þetta hafði Göran Dahlström, flokksbróðir hans og bæjarfulltrúi í Katrineholm, sagt í samtali við Expressen að hann, sem sjónarvottur að því sem er að gerast, væri ekki í vafa um hverjir ættu hlut að máli. Hann gagnrýndi Löfven fyrir að segja ekki skýrt að vandinn tengdur glæpagengjunum tengist hinum mikla straumi flóttamanna til Svíþjóðar.

„Það er á samfélagsmiðlum, hjá áberandi vinstrimönnum og hjá jafnaðarmönnum ákveðin tilhneiging til að telja að það sem ég og flokkurinn í Katrineholm stöndum fyrir sé rasískt.“

Ulf Kristersson, leiðtogi Moderaterne, skrifaði á Facebook að flokkur hans bæri einnig ábyrgð á þeirri innflytjendastefnu sem hefur verið við lýði í Svíþjóð en nú verði Löfven að axla ábyrgð og horfast í augu við raunveruleikann.

„Það er jú augljóst að glæpagengin, skotárásirnar og morðin tengjast alltof miklum fjölda innflytjenda og lélegri aðlögun þeirra að samfélaginu sterklega.“

Skrifaði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn