Þjóðleikhúsið býður öllum landsmönnum upp á stórskemmtilegar leiksýningar á nýju leikári. „Við eigum 70 ára afmæli í ár og það verða fjölbreyttar sýningar á fjölunum við allra hæfi. Þar má telja þónokkur ný leikrit eftir íslenska höfunda, barna- og fjölskylduleikrit, gagnvirkar sýningar, klassísk verk, framsæknar sýningar, gamanleikrit og ýmislegt fleira,“ segir Atli Þór Albertsson, markaðsstjóri Þjóðleikhússins.
Gjafakort í leikhús: Menningarleg skemmtun í jólagjöf
Gjafakort halda áfram að vera vinsælar jólagjafir og einnig sem jólagjöf fyrirtækja til starfsmanna. Þess má geta að gjafakort Þjóðleikhússins renna aldrei út, en andvirði þeirra getur breyst á milli ára. Sérstök gjafakort verða í boði fyrir Kardemommubæinn svo börnin geta glaðst um jólin og farið að hlakka til næsta leikárs. Á þessu leikári sýnir Þjóðleikhúsið fjölda leikverka sem skarta mörgum af ástsælustu leikurum landsins. „Leikhúsferðir eru með því skemmtilegra sem hægt er að hugsa sér enda menningarleg og skemmtileg afþreying. Jólagjöfin í ár er án alls efa gjafakort í Þjóðleikhúsið enda geta allir fundið sýningu við sitt hæfi.“
Kasper og Jesper og Jónatan!
Kardemommubærinn er klassískt leikrit úr smiðju Thorbjörns Egner og var fyrst sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1960. Þá fóru með aðalhlutverk Róbert Arnfinnsson sem Bastían bæjarfógeti, Emilía Jónsdóttir var Soffía frænka en ræningjana þrjá léku þeir Ævar Kvaran, Baldvin Halldórsson og Bessi Bjarnason. Þetta fræga verk er eflaust uppáhald allra Íslendinga. „Það eiga sér allir sínar minningar frá Kardemommubænum og nú frumsýnum við Kardemommubæinn fyrir nýja kynslóð.“ Sýningar byrja í apríl og með aðalhlutverk fara Örn Árnason sem Bastían, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir sem Soffía frænka og ræningjana leika þeir Hallgrímur Ólafsson, Sverrir Þór Sverrisson og Oddur Júlíusson.
Þitt eigið leikrit II Tímaferðalag er svo stórskemmtileg gagnvirk fjölskyldusýning eftir Ævar Þór vísindamann, þar sem áhorfendur kjósa reglulega á milli valkosta sem stýra framvindu sýningarinnar á meðan hún er að eiga sér stað. Þetta gerir það að verkum að hver sýning er ólík þeirri sem á undan var.
Meðal áhugaverðra sýninga má nefna verkið Útsending. Ingvar E. Sigurðsson fer þar með aðalhlutverkið en verkið fjallar um bandaríska sjónvarpsfréttamanninn Howard Beale sem er sagt upp störfum eftir 25 ára starfsframa. Í kjölfarið tilkynnir hann áhorfendum sínum um fyrirhugað sjálfsmorð sitt og við það rjúka áhorfendatölur upp úr öllu valdi. „Sýningin fékk frábærar viðtökur í London. Við í Þjóðleikhúsinu ætlum að fara skemmtilegar leiðir í uppsetningu verksins, en þetta mun virka eins og sjónvarpsútsending og mæta áhorfendur í nokkurs konar sjónvarpssal úr smiðju Egils Eðvarðssonar.“
Ástfangið leikritaskáld og Chaplin
Shakespeare verður ástfanginn heldur áfram á leikhúsfjölunum út árið enda hefur verkinu verið einstaklega vel tekið af áhorfendum. Um er að ræða fjörugan og rómantískan gamanleik sem er unninn út frá Óskarsverðlaunamyndinni Shakespeare in Love. Á meðal leikara eru þau Aron Már Ólafsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Örn Árnason, Edda Björgvinsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Guðjón Davíð Karlsson. Einræðissherrann verður áfram á fjölunum og þar fer Siggi Sigurjóns, óskabarn þjóðarinnar, á kostum sem Chaplin.
Ný íslensk verk
Kópavogskróníka er glænýtt íslenskt leikverk sem Ilmur Kristjánsdóttir og Silja Hauksdóttir hafa nostursamlega fært á svið upp úr vinsælli samnefndri skáldsögu Kamillu Einarsdóttur. Verkið fjallar um unga og einstæða móður sem dvelst langdvölum í Kópavogi eftir að hafa lent í rækilegri ástarsorg. Einnig frumsýndi Þjóðleikhúsið Ör, (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) sem unnið er úr samnefndri skáldsögu Auðar Övu, í upphafi leikársins og óhætt að segja að viðtökur hafi verið frábærar.
„Ef mér telst rétt til þá eru tuttugu sýningar á fjölunum þennan veturinn. Þetta eru ótrúlega ólíkar og fjölbreyttar sýningar og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Atli að lokum og býður alla velkomna í Þjóðleikhúsið.
Kynntu þér frábærar leiksýningar Þjóðleikhússins á leikhusid.is