Búið er að gefa út tilkynningu um að innkalla kjúklingavörur frá framleiðandanum Simmons Prepared Foods Inc. sem framleiddar voru í lok október og byrjun nóvermber. Grunur er á að afurðirnar sem um ræðir séu mengaðar af málmi. Íbuar í Alabama, Arizona, Arkansas, California, Georgia, Minnesota, Oklahoma og Pennsylvania þurfa því nú að taka ískápinn í gegn og athuga hvort það leynist sýktar vörur í honum. Um mikið magn af kjúklingaafurðum er að ræða en KFOR greinir frá því að henda þurfi um 907 tonnum af kjúklingi vegna megnunarinnar.