fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Guðmundur í Brimi eignast meirihlutann í Brimi

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 16. október 2019 17:00

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, hefur í gegnum félag sitt, Útgerðarfélag Reykjavíkur, eignast tæplega 53% meirihluta  í félaginu eftir að gengið verður frá kaupum félagsins á hlut FISK Seafood fyrir tæplega átta milljarða króna, samkvæmt tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Í tilkynningunni er vísað til þess að á hluthafafundi í Brim hf. þann 15. ágúst síðastliðinn var samþykkt að hækka hlutafé félagsins um 133.751.606 hluti sem skyldu afhentir Útgerðarfélagi Reykjavíkur hf. Hlutfjárhækkun þessi hefur nú komið til framkvæmda. Í kjölfarið eykst eignarhlutur Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. og tengdra aðila úr 701.743.876 hlutum í 835.495.482 hluti, sem samsvarar hlutfallslegri aukningu úr 38,51% í 42,71% af heildarhlutafé Brims hf.

FISK Seafood er sjávarútvegshluti Kaupfélags Skagfirðinga, en enn hafa fyrirvarar vegna kaupanna ekki verið uppfylltir, en gert er ráð fyrir að það verði gert fyrir 1. desember næstkomandi.

Útgerðarfélag Reykjavíkur hét áður Brim hf. sem Guðmundur var kenndur við. Nú er Guðmundur hinsvegar forstjóri þess Brims sem áður hét HB Grandi, en þegar Guðmundur keypti þriðjungshlut í HB Granda fyrir um 22 milljarða í fyrra, af Kristjáni Loftssyni í Hval hf. og tengdum félögum, myndaðist yfirtökuskylda og hefur Guðmundur smátt og smátt aukið hlut sinn, þar sem flestir hluthafar ákváðu að selja bréf sín ekki strax í fyrstu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi