fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Pressan

Segja langvarandi vöruskort verða ef Brexit verður samningslaust

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 9. ágúst 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef Bretar ganga úr ESB án þess að samningur liggi fyrir um útgönguna má búast við skorti á mörgum tegundum ferskra matvara vikum eða mánuðum saman. Einnig mun mikið af matvælum rotna og skemmast á meðan þau bíða tollafgreiðslu.

Þetta er mat samtaka breskra matvælaframleiðenda, The Food and Drink Federation. Boris Johnson og ríkisstjórn hans stefna að útgöngu úr ESB þann 31. október næstkomandi hvort sem samningar hafa náðst eða ekki. Ekki er að sjá að samningar séu í nánd því ESB hefur ekki í hyggju að setjast enn einu sinni að samningaborðinu með Bretum.

Matvælaframleiðendurnir segja að fólk muni ekki svelta en það verði skortur á ferskum matvælum og sumum sérvörum. Skorturinn á ferskum matvælum mun vara í vikur eða mánuði að mati samtakanna og verð mun einnig hækka.

Útganga úr ESB í lok október gerir ástandið enn verra því vegna loftslagsins á Bretlandseyjum þá er miklu minni ræktun á ávöxtum og grænmeti á þeim árstíma en að sumri til. Í byrjun nóvember er um 60 prósent af öllum matvælum, sem seld eru í Bretlandi, innflutt.

Stórmarkaðir ætla að fylla á birgðageymslur sínar fyrir Brexit en eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að fylla þær af ferskum matvælum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi

Tveggja ára barn lést í hoppukastaslysi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum

Reyndi að svindla á reglunum varðandi samakstur – Lögreglan sá við honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari

Amma á níræðisaldri sögð vera harðsvíraður okurlánari
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“

„Svo fékk ég símtal sem breytti öllu“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn

Játar að hafa skotið 14 mánaða hundinn sinn