fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þetta er maðurinn á bakvið umdeildan íslenskan Twitter-aðgang: ,,Hvenær ætlarðu að hætta að áreita stelpur?“

433
Sunnudaginn 26. maí 2019 17:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhverjir Íslendingar ættu að kannast við Twitter aðganginn @BoringGylfiSig en sá aðgangur hefur vakið nokkra athygli síðustu ár.

Á aðgangnum má sjá nokkur mjög umdeild tíst þar sem ritað er um viðkvæm málefni á nafni Gylfa Þórs Sigurðssonar.

Aðgangurinn er kenndur við Gylfa Þór, landsliðsmann í knattspyrnu, þó að það sé að sjálfsögðu vitað að hann sé ekki maðurinn á bakvið skjáinn.

Söngkonan Karólína Jóhannsdóttir sá um það að afhjúpa manninn sem sér um að þennan umdeilda aðgang.

Það er leikarinn Þórir Sæmundsson sem er ‘Boring Gylfi Sig’ á Twitter en hann kom upp um sjálfan sig er hann birti skjáskot af Instagram.

,,Jæja. Let’s Go. @BoringGylfiSig,“ skrifar Karólína á Twitter og birti mynd af Instagram síðu Þóris þar sem má sjá í notendamynd hans.

Það eru ófáir sem hafa tjáð sig á samskiptamiðlinum eftir þessar fréttir en aðgangurinn hefur tístað ýmislegt sem hefur farið fyrir brjóstið á mörgum.

Aðgangurinn er heilt yfir ekki vinsæll á meðal almennings og er Þórir til að mynda kallaður „R. Kelly Íslands.“

,,R Kelly Íslands. Bloody creep sem þú ert maður. Hvenær ætlarðu að hætta að áreita stelpur?“ skrifar Steingrímur við færslu Þóris þar sem hann staðfestir að hann sé maðurinn á bakvið aðganginn.

Þóri ættu einhverjir landsmenn að kannast við en hann lék til að mynda Badda í leikritinu Djöflaeyjan.

Þórir var rekinn úr Þjóðleikhúsinu fyrir þremur árum síðan en hann var ásakaður um kynferðislegt áreiti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“

Breytt staða á Hlíðarenda – „Það er búið að herða sultarólina“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða