Fertugur karlmaður í Indiana í Bandaríkjunum hefur stefnt foreldrum sínum. Ástæðan er heldur undarleg, en málið snýst um þá ákvörðun foreldra hans að henda ógnarstóru safni af klámmyndum sem sonurinn hafði sankað að sér.
Þannig er mál með vexti að maðurinn flutti inn til foreldra sinna í Grand Haven í Michigan árið 2016 eftir að hafa skilið við eiginkonu sína.
Tíu mánuðum seinna flutti hann í eigin íbúð, í Munchie í Indiana, en þegar foreldrar hans komu með eigur hans vantaði dálítið; 12 kassa af klámmyndböndum. Þegar maðurinn spurði föður sinn hverju sætti svaraði faðirinn að hann hafi hent kössunum.
Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að sonurinn hafi verið verulega ósáttur við þessa ákvörðun. Raunar svo ósáttur að hann hefur nú stefnt foreldrum sínum og fer hann fram á 86 þúsund dali í bætur, rúmar tíu milljónir króna. Segir hann að í safninu hafi verið mjög fágætar myndir sem erfitt er að nálgast.